Hoppa yfir í efni

Tollafgreiða sýnishorn

Hér verður ferlinu við að tollafgreiða sýnishorn lýst.

1. Innkaupapöntun búin til á erlendan lánardrottin:

Ef vara á innkaupapöntuninni er án verðmætis frá birgja þá er hægt að fylla inn í reitinn Tollverðmæti línu með verðmæti til tolls.

alt text

2. Búa til nýja tollskýrslu með aðstoð:

Sjá nánari lýsingu hér

Tollskýrslan fyllist sjálfkrafa með alls konar upplýsingum út frá sniðmáti og innkaupapöntun.

Tollverðmæti vöru færist í reitinn Vöruverð í tollskýrslulínu.

alt text

3. Klára tollskýrslu:

Hægt er að nota villuathugun á tollskýrslu til að sjá strax hvað vantar í hana. Sjá nánari lýsingu hér

Þegar tollskýrslan er orðin villulaus er hægt að prenta prófunarskýrslu til að sjá hvernig hún kemur út. Sjá nánari lýsingu hér

4. Senda tollskýrslu til tolls:

Ef engar villur eru á tollskýrslu þá er hægt að senda hana til tolls. Sjá nánari lýsingu hér

5. Sækja tollsvör:

Hægt er að setja upp sjálfkrafa innlestur með verkraðarafærslu. Sjá nánari lýsingu hér

Þegar tollsvarið hefur verið sótt vinnur kerfið úr því. Sjá nánari lýsingu hér

Ef aðflutningsgjöld og tollar leggjast á sýnishorn, verður þeim úthlutað á aðrar tollskýrslulínur sem eru með verðmæti. Ef eingöngu sýnishorn eru í tollskýrslu verður innkaupapöntun á tollstjóra stofnuð og fjárhagsreikningur notaður fyrir aðflutningsgjöld. Sjá nánari lýsingu í kafla Úrvinnsla tollsvara í stillingum tollakerfis hér

6. Bóka innkaupamóttöku vöru:

Það verður að bóka innkaupamóttöku vöru áður en unnið er úr tollsvarinu þar sem innkaupareikningslínur vegna aðflutningsgjalda tengjast innkaupamóttöku.

7. Bóka innkaupareikning vegna aðflutningsgjalda:

Innkaupareikningur vegna aðflutningsgjalda er ýmist stofnaður sjálfkrafa (athuga stillingar tollakerfis) eða með því að nota aðgerðina Búa til innkaupareikning út frá CUSTAR. Sjá nánari lýsingu hér

Innkaupareikningslínur endurspegla gjaldalínur í tollsvarinu CUSTAR. Sjá nánari lýsingu hér

8. Kostnaðarverð vöru myndast út frá innkaupsverði og aðflutningsgjöldum:

Sjá nánari lýsingu hér

9. Bóka tollskýrslu:

Þegar ferlinu er lokið, tollskýrslan er með stöðu skuldfærð, allar tengdar innkaupapantanir og reikningar hafa verið bókuð er óhætt að bóka tollskýrslu. Bókunin er í raun að setja tollskýrslu í geymslu. Sjá nánari lýsingu hér