Hoppa yfir í efni

Nota tollkvóta á tollskýrslu

Hér verður útskýrt hvenær hægt er að nota tollkvóta á tollskýrslu.

  1. Skrá tollkvóta í kerfinu. Sjá nánari lýsingu hér
  2. Búa til innkaupapöntun með vöru sem eru með tollflokk innan tollkvótans. alt text
  3. Búa til tollskýrslu út frá innkaupapöntuninni og í tollskýrslulínu, velja tollkvótann. Kerfið fyllir svo sjálft magn tollkvóta út frá nettóþyngd á tollskýrslulínu. Tollkvótafærsla stofnast á tollkvótann með stöðuna Frátekið þangað til tollkvótareikningurinn er bókaður. alt text
  4. Klára tollskýrsluna og senda til tolls.
  5. Þegar skuldfærslan berst eru tollagjöld felld niður af tolli en kerfið býr til innkaupareikning á skattinn sem endar á 0. Inn í er kostnaðurinn vegna notkunar tollkvótans bókaður sem kostnaðarauki á innkaupamóttöku en jafnað út strax á fjárhagsreikningnum sem tilgreindur er í stillingum tollakerfis. alt text
  6. Þegar tollskýrslan er bókuð, bókast allar tengdar innkaupareikningar og kostnaður við tollkvótann bókast á viðeigandi birgðafærslu. Tollkvótafærslan skráist á tollkvótann með stöðunni Bókað. alt text