Hoppa yfir í efni

Búa til útflutningstollskýrslu

Hér verður lýst ferlinu við að búa til útflutningstollskýrslu út frá bókuðum sölureikningum.

1. Sölureikningur búinn til á erlendum viðskiptamanni:

Sölureikningurinn erfir upplýsingar frá viðskiptamannaspjaldi og vöruspjöldum.

Hafa þarf í huga að viðskiptamannaspjald sé rétt fyllt út með gjaldmiðilskóta og bókunarflokkar réttir.

Hafa þarf í huga að fylla tollnúmer á vöruspjaldi eða í tollstillingum vörunúmera. Sjá nánari lýsingu hér

2. Búa til nýja útflutningsskýrslu með aðstoð:

Sjá nánari lýsingu hér

Tollskýrslan fyllist sjálfkrafa með alls konar upplýsingum út frá sniðmáti og innkaupapöntunum.

3. Klára tollskýrslu:

Hægt er að nota villuathugun á tollskýrslu til að sjá strax hvað vantar í hana. Sjá nánari lýsingu hér

Þegar tollskýrslan er orðin villulaus er hægt að prenta prófunarskýrslu til að sjá hvernig hún kemur út. Sjá nánari lýsingu hér

4. Senda tollskýrslu til tolls:

Ef engar villur eru á tollskýrslu þá sendist hún til vefþjónustu Deloitte og þaðan til tolls. Sjá nánari lýsingu hér

5. Sækja tollsvör:

Hægt er að setja upp innlestur á tollsvörum sjálfkrafa með verkraðarafærslu. Sjá nánari lýsingu hér

Þegar tollsvarið hefur verið sótt breytist staða skýrslu skv. því.

9. Bóka tollskýrslu:

Þegar ferlinu er lokið og útflutningsskýrslan er með stöðu Útflutningsheimild, er óhætt að bóka útflutningsskýrslu. Bókunin er í raun að setja tollskýrslu í geymslu. Sjá nánari lýsingu hér