Hoppa yfir í efni

Færa línur inn handvirkt

Aðgerðin opnar einföldan glugga til að skrá tollskýrslulínur. Um leið og glugginn er lokaður, þá uppfærast tollskýrslulínur skv. því.

alt text

Vörunúmer :

Hægt er að velja vörunúmer úr vörulista fyrirtækisins. Ef tollmiðlari er ekki með vörunúmer þá skráir hann beint tollnúmer.

Tollnúmer:

Fyllist sjálfkrafa út frá vörunúmeri en hægt að fylla inn handvirkt.

Vörulýsing:

Fyllist sjálfkrafa út frá vörunúmeri eða tollnúmeri.

Fjöldi:

Fjöldi stykkja fyrir tollskýrslulínu.

Mælieining:

Fyllist sjálfkrafa inn sem PCE en hægt að breyta.

Upprunalegur gjaldmðill:

Fyllist út sjálfkrafa út frá gjaldmiðli skýrslu. Hægt að breyta ef reikningurinn er í öðrum gjaldmiðli.

Vöruverð:

Vöruverð skv. reikningi sendanda.

Nettóþyngd:

Nettóþyngd skv. reikningi sendanda eða reiknast sjálfkrafa sem 90% af brúttóþyngd.

Brúttóþyngd:

Brúttóþyngd skv. reikningi sendanda.

Reikningsnúmer lánardrottins:

Reikningsnúmer lánardrottins skv. reikningi sendanda.