Hoppa yfir í efni

Inngangur

Vilt þú einfalda ferlið fyrir innkaup og tollafgreiðslu? Þú getur haldið utan um allt ferlið í Microsoft Dynamics 365 Business Central!

Hvað gerir Tollakerfið

Tollakerfi Rue de Net er byggt ofan á Microsoft Dynamics 365 Business Central og auðveldar allt ferli sem viðkemur innkaupum og tollafgreiðslu. Með Tollakerfinu heldur þú utan um allt tollafgreiðsluferlið í Business Central ásamt því að allt innkaupaferli er á einum stað. Kerfið styður EDI samskipti í gegnum Deloitte og auðveldar þér að senda tollskýrslur.

Með Tollakerfinu getur þú meðal annars búið til innflutningstollskýrslu fyrir innkaupapantanir, sent tollskýrslu með EDI til tolls og lesið svörin sem koma til baka. Einnig geturðu séð stöðu tollskýrslna í kerfinu í rauntíma og skoðað skuldfærsluheimild. Auk þess geturðu bókað innkaupin og aðflutningsgjöld ásamt því að sjá rétt birgðaverðmæti í kerfinu.

EDI samskipti

Tollakerfi Rue de Net styður EDI samskipti til tolls í gegnum Deloitte skeytamiðlun. Þar með er tollskýrslan send rafrænt til tollsins og hægt er að fylgjast með stöðu hennar í kerfinu. Hægt er að lesa EDI svör til baka frá tollinum og gera lagfæringar ef þörf er á. Öll gögn eru aðgengileg í rauntíma og sparar bæði tíma og kostnað við gerð tollskýrslna.

Helstu eiginleikar Tollakerfis?

Microsoft Dynamics 365 Business Central

Tollakerfi Rue de Net er byggt ofan á viðskiptakerfinu Business Central.

SAD tollskýrsla

Tollakerfi Rue de Net byggir á SAD tollskýrslu fyrir innflutning samkvæmt nýjustu uppfærslu tollsins.

EDI samskipti

EDI samskipti fara beina leið milli vefþjónustu Deloitte, Business Central og tollsins. Engin þörf er á að reka sérstakan EDI þýðanda.

Sjálfvirk villuathugun

Kerfið býður upp á sjálfvirka villuathugun og hægt er að laga tollskýrslu innan villuathugunar, það fækkar skrefum við lagfæringar.

Log skrá fyrir samskipti

Kerfið inniheldur log skrá fyrir EDI samkipti per tollskýrslu. Hægt er að opna hvert skeyti fyrir sig og skoða innihald þess (villur, athugasemdir og gjöld).

Bókað beint úr tollskýrslu

Tollakerfi Rue de Net býður upp á að bóka móttöku innkaupa beint úr tollskýrslu.

Innkaupareikningur myndaður sjálfkrafa

Við móttöku skuldfærslu aðflutningsgjalda frá tolli er myndaður innkaupareikningur sjálfkrafa með kostnaðarauka vöru.

Afgreiðsla tvö meðhöndluð rafrænt

Tollakerfi Rue de Net býður upp á að meðhöndla afgreiðslu tvö rafrænt svo engin þörf er á pappírsvinnu.

Sjálfvirk bakfærsla aðflutningsgjalda

Bakfærsla aðflutningsgjalda er meðhöndluð með því að kreditfæra tollareikning sjálfkrafa.