Hoppa yfir í efni

Tollsvarsvillur

Sýnir allar villur eða athugasemdir sem hafa verið skráðar í svarskeyti af tolli.

alt text

Upplýsingar

Nr. móttökuhauss:

Númer svarskeytis.

Villunúmer:

Númer villu í töflunni.

Dagsetningarstimpill:

Dagsetning sem svarskeyti var lesið inn í kerfinu.

EDI tegund:

Tegund svarskeytis frá tolli. T.d. CUSGER, CUSERR, CUSDOR eða CUSTAR.

Kóti villu:

Kóti villu eða viðbótarskjals skv. tolli. Athugið að tollurinn sendir bara kóta og því þarf að skrá lýsingu í kerfinu til að geta sýnt hann. Ef kótinn er óþekktur í kerfinu þá kemur engin lýsing á honum. Hægt er að skrá kóta og lýsingu í Stofngögn - Villukótar eða Kótar viðbótarskjala.

Lýsing villu.

Lýsing villu skv. skráningu í Stofngögn - Villukótar eða Kótar viðbótarskjala. Ef kóti er óþekktur í kerfinu þá kemur engin lýsing á honum.