Hoppa yfir í efni

Tengja flutningsgjaldareikning við innflutningstollskýrslu

Til að bóka flutningsgjaldareikning með kostnaðarauka á vöru er hægt að nota aðgerð sem tengir kostnaðarauka við innflutningstollskýrslu. Þannig tengist innkaupareikningur við innkaupamóttökur sem eru á tollskýrslu.

alt text

  1. Stofna innkaupareikning.
  2. Skrá kostnaðarauka í innkaupareikningslínur (Gjald(vara)), magn og ein.verð.
  3. Velja aðgerð "Setja kostnaðarauka á tollskýrslu" eða "Setja kostnaðarauka á bókaða tollskýrslu".
  4. Velja tollskýrslu sem um ræðir og velja "OK".
  5. Þá er úthlutað magn á línu skráð á viðeigandi móttöku.