Hoppa yfir í efni

Innflutningstollskýrsla

Um er að ræða innflutningstollskýrsluspjald sem er hjarta kerfisins.

alt text

Almennt

Nr.:

Númer tollskýrslu.

Staða:

Staða tollskýrslu. Möguleikar eru: Opin, Send, Á villu, Skuldfært.

Tegund innflutningsskýrslu:

Kerfið skilgreinir hvort um venjulega skýrslu er að ræða eða leiðréttingu.

Villur:

Kerfið safnar saman villum á tollskýrslu þegar aðgerðin "Villuathuga skýrslu" er valin. Hægt er að opna undirsíðu til að skoða villur. Sjá nánari lýsingu hér.

Búin til af notanda:

Notandakenni Microsoft Dynamics 365 Business Central notanda sem bjó til tollskýrslu.

Búin til dagsetning:

Dagsetning sem tollskýrsla var stofnuð.

Búin til klukkan:

Tími sem tollskýrsla var stofnuð.

Seinast breytt af notanda:

Notandakenni Dynamics 365 Business Central notanda sem breytti tollskýrslu.

Búin til dagsetning:

Dagsetning sem tollskýrslu var breytt.

Búin til klukkan:

Tími sem tollskýrslu var breytt.

Send af notanda:

Notandakenni Dynamics 365 Business Central notanda sem sendi tollskýrslu á EDI til tolls.

Send dagsetning:

Dagsetning sem tollskýrsla var send á EDI til tolls.

Send klukkan:

Tími sem tollskýrsla var send á EDI til tolls.

Innkaupareikningar:

Innkaupareikningar tengdir tollskýrslu. Getur verið innkaupareikningur vegna aðflutningsgjalda.

Bókaðir innkaupareikningar:

Bókaðir innkaupareikningar tengdir tollskýrslu. Getur verið innkaupareikningur vegna aðflutningsgjalda og vegna vöru.

Innkaupakreditreikningar:

Innkaupakreditreikningur tengdur tollskýrslu. Getur verið innkaupakreditreikningur vegna aðflutningsgjalda ef bakfærsla hefur borist frá tolli.

Bókaðir innkaupakreditreikningar:

Bókaður innkaupakreditreikningar tengdur tollskýrslu. Getur verið innkaupakreditreikningur vegna aðflutningsgjalda og vegna vöru.

Aðilar

Sendandi

Nr. sendanda:

Númer lánardrottins vegna innflutnings. Þegar númer lánardrottins er valið fyllast sjálfkrafa út næstu reitir með upplýsingum úr lánardrottnaspjaldi.

Kennitala sendanda:

Kennitala lánardrottins vegna innflutnings. Er sjálfkrafa fyllt út með 0000000000 vegna EDI skeytis til tolls.

Nafn sendanda:

Nafn lánardrottins vegna innflutnings.

Heimilisfang sendanda:

Heimilisfang lánardrottins vegna innflutnings.

Borg sendanda:

Borg lánardrottins vegna innflutnings.

Póstnúmer sendanda:

Póstnúmer lánardrottins vegna innflutnings.

Land sendanda:

Land lánardrottins vegna innflutnings.

Viðtakandi

Allir reitir undir kafla "Viðtakandi" eru fylltir út sjálkrafa úr stofngögnum innflytjanda ef fyrirtækið er ekki tollmiðlari. Ef fyrirtækið er tollmiðlari, þá fyllast allir reitir sjálfkrafa út frá viðskiptamannaspjaldi viðtakanda.

Nr. viðtakanda:

Kennitala fyrirtækisins eða kennitala viðskiptamanns ef tollmiðlun.

Tollmiðlari

Senda sem tollmiðari:

Hakað er í þennan reit ef hefur verið valið að skila tollskýrslu sem tollmiðlari.

Ábyrgðaaðili greiðslu:

Fyllist sjálfkrafa út frá sniðmáti tollskýrslu sem var valið við stofnun tollskýrslu. Ef viðtakandi er valinn þá er viðskiptavinur með tollkrít og munu aðflutningsgjöld skuldfærast á hann.

Kennitala tollmiðlara:

Kennitala tollmiðlara kemur úr stofngögnum fyrirtækisins.

VSK númer tollmiðlara:

VSK númer tollmiðlara kemur úr stofngögnum fyrirtækisins.

Netfang tollmiðlara:

Netfang tollmiðlara kemur úr stofngögnum fyrirtækisins.

Símanúmer tollmiðlara:

Símanúmer tollmiðlara kemur úr stofngögnum fyrirtækisins.

Starfsmaður

Starfsmaður:

Starfsmaður sem bjó til tollskýrslu og mun senda í sínu nafni til tolls.

Kennitala starfsmanns.

Kennitala starfsmanns sem bjó til tollskýrslu og mun senda í sínu nafni til tolls.

Tölvupóstur starfsmanns:

Tölvupóstur starfsmanns sem bjó til tollskýrslu og mun senda í sínu nafni til tolls.

Símanúmer starfsmanns:

Símanúmer starfsmanns sem bjó til tollskýrslu og mun senda í sínu nafni til tolls.

Skýrsla

alt text

Viðskiptasvæði:

Viðskiptasvæði á tollskýrslu. Er t.d. EU fyrir innflutning frá Evrópu.

Tegund tollafgreiðslu:

Tegund tollafgreiðslu á tollskýrslu. T.d. AL fyrir venjulegar innflutningssendingar og HS fyrir hraðsendingar. Ef tegund tollafgreiðslu er HS þarf að fylla inn í viðmiðunardagsetningu fyrir tollgengi.

Númer tollafgreiðslu:

Segir til um hvort um afgreiðslu 1 eða 2 er að ræða.

Tilvísunarnúmer:

Fyllist sjálfkrafa inn með tollskýrslunúmeri þegar tollskýrsla er stofnuð.

Viðskiptaland (innkaupsland):

Fyllist sjálfkrafa inn með landi innflytjanda.

Útflutningsland:

Fyllist sjálfkrafa inn með landi sendanda.

Sendingarnúmer:

Þarf að færa inn handvirkt. Er fundið á tilkynningu frá farmflytjanda.

Farmskrárnúmer:

Sjálfkrafa fyllt inn með síðustu 4 stöfum af sendingarnúmeri en farmskrárnúmer finnst á tilkynningu frá farmflytjanda. Ef um póstssendingu er að ræða á að skila farmskrárnúmeri tómu.

Afhendingarskilmálar:

Hér á að velja afhendingarskilmála m.v. reikning frá sendanda.

Staðsetning afhendingarskilmála:

Hér á að færa inn afhendingarstað vöru (getur ýmist verið erlendis ef um EXW eða FOB er að ræða eða á Íslandi ef um CIF eða DDP er að ræða).

Upphæðir

alt text

Gjaldmiðill heildarupphæðar:

Gjaldmiðilskóti á tollskýrslu. Erfist frá innkaupapöntunum sem hafa verið settar á tollskýrslu.

Heildarupphæð reiknings:

Heildarupphæð reiknings, reiknast út frá vörulínum á innkaupapöntun sem hafa verið settar á tollskýrslu.

Dagsetning tollgengis:

Tollgengisdagsetning á tollskýrslunni.

Tollgengi:

Tollgengi á tollskýrslunni.

Brúttóþyngd:

Brúttóþyngd sendingar. Reiknast út frá brúttóþyngd í tollskýrslulínum. Þarf að stemma við tilkynningu frá farmflytjanda og er alltaf námundað upp í heiltölu. Ef brúttóþyngd er ekki skráð á tollskýrslulínum er hægt að ýta á reitinn til að skrá heildarbrúttóþyngd og láta kerfið dreifa á tollskýrslulínur eftir verðmæti. Sjá nánari lýsingu hér. Ef þyngdardreifing á tollskýrsluspjaldi er virk, þá er þá hægt að slá inn brúttóþyngd beint í reitinn og kerfið dreifir svo brúttóþyngd sjálfvirkt skv. stillingum.

Nettóþyngd:

Þessi reitur sést eingöngu ef þyngdardreifing á tollskýrsluspjaldi er virk í stillingum tollakerfis. Þá er hægt að slá inn nettóþyngd beint í reitinn og kerfið dreifir svo nettóþyngd á tollskýrslulínur skv. stillingum.

Stykkjatala (fjöldi umbúða):

Stykkjatala send til tolls. Þarf að stemma við tilkynningu frá farmflytjanda.

Flutningskostnaður

Flutningskostnaður:

Upphæð flutningskostnaðar.

Gjaldmiðill flutningskostnaðar:

Gjaldmiðill flutningskostnaðar.

Lánardrottinn flutningskostnaðar:

Lánardrottinn fyrir bókun á flutningskostnaði. Er sjálfkrafa fylltur út frá stillingum tollakerfis ef við á.

Kostnaðarauki flutningskostnaðar:

Kostnaðarauki fyrir bókun á flutningskostnaði. Er sjálfkrafa fylltur út frá stillingum tollakerfis.

Flutningskostnaður 2:

Upphæð flutningskostnaðar 2.

Gjaldmiðill flutningskostnaðar 2:

Gjaldmiðill flutningskostnaðar 2.

Lánardrottinn flutningskostnaðar 2:

Lánardrottinn fyrir bókun á flutningskostnaði 2. Er sjálfkrafa fylltur út frá stillingum tollakerfis ef við á.

Kostnaðarauki flutningskostnaðar 2:

Kostnaðarauki fyrir bókun á flutningskostnaði 2. Er sjálfkrafa fylltur út frá stillingum tollakerfis.

Annar kostnaður

Annar kostnaður:

Upphæð annars kostnaðar.

Gjaldmiðill annars kostnaðar:

Gjaldmiðill annars kostnaðar.

Lánardrottinn annars kostnaðar:

Lánardrottinn fyrir bókun annars kostnaðar. Er sjálfkrafa fylltur út frá stillingum tollakerfis ef við á.

Kostnaðarauki annars kostnaðar:

Kostnaðarauki fyrir bókun annars kostnaðar. Er sjálfkrafa fylltur út frá stillingum tollakerfis.

Annar kostnaður 2:

Upphæð annars kostnaðar 2.

Gjaldmiðill annars kostnaðar 2:

Gjaldmiðill annars kostnaðar 2.

Lánardrottinn annars kostnaðar 2:

Lánardrottinn fyrir bókun annars kostnaðar 2. Er sjálfkrafa fylltur út frá stillingum tollakerfis ef við á.

Kostnaðarauki annars kostnaðar 2:

Kostnaðarauki fyrir bókun annars kostnaðar 2. Er sjálfkrafa fylltur úr frá stillingum tollakerfis.

Vátrygging

Vátrygging:

Upphæð vátryggingar. Ef vátrygging % er tilgreind reiknast upphæðin út frá afhendingarskilmála og vöruverði auk flutningskostnaðar.

Vátrygging %:

Vátryggingar %, oftast er notað 1%.

Gjaldmiðill vátryggingar:

Gjaldmiðill vátryggingar.

Lánardrottinn vátryggingar:

Lánardrottinn fyrir bókun á vátryggingu. Er sjálfkrafa fylltur út frá stillingum tollakerfis.

Kostnaðarauki vátryggingar:

Kostnaðarauki fyrir bókun á vátryggingu. Er sjálfkrafa fylltur út frá stillingum tollakerfis.

Aðrar upplýsingar

alt text

Gámanúmer:

Hak kemur sjálfkrafa ef gámanúmer er skráð í tollskýrslulínu.

Nr. flugfylgibréfs:

Færa inn flugfylgibréfsnúmer. Er fundið á tilkynningu frá farmflytjanda.

Viðtökunúmer póstssendinga:

Færa inn viðtökunúmer póstssendinga ef um póstssendingu er að ræða. Kerfið kemur með villu ef sendingarnúmerið byrjar á P og vantar að fylla inn viðtökunúmer póstssendinga. Það er hægt að skrá fleiri viðtökunúmer á tollskýrslu og kerfið birtir þá fjölda þeirra í reitnum.

Flutningsmáti yfir landamæri:

Flutningsmáti yfir landamæri, t.d. 40 fyrir loftflutninga.

Vörugeymsla:

Vörugeymslu þar sem varan er geymd, oftast hjá farmflytjanda.

Tegund viðskipta:

Tegund viðskipta, oftast 1: með greiðslu.

EUR leyfi á allar línur:

Hægt er að skrá EUR leyfisnúmer eða yfirlýsingu sem mun gilda á öllum tollskýrslulínum.

Línur með mögulegan tollkvóta:

Sýnir fjölda lína sem eru með tollnúmer með tollkvóta í gildi. Ef smellt er á reitinn, opnast glugginn Tollkvótar tollskýrslulína. Sjá nánari lýsingu hér.

Sniðmát:

Tilgreinir sniðmát sem var notað til að stofna tollskýrslu.

Línur

Vörulýsing:

Lýsing á vöru. Erfist frá innkaupapöntun.

Tollnúmer:

Tollskrárnúmer vöru. Erfist frá vöruspjaldi ef það er fyllt út, annars er hægt að fylla beint út í tollskýrslulínu og þá uppfærist vöruspjaldið eftir því hvernig stillingar eru í stillingum tollakerfis. Sjá nánari lýsingu hér.

Upprunaland:

Fylla inn með upprunalandi vöru skv. vörureikningi, annars er hægt að fylla beint út í tollskýrslulínu og þá uppfærist vöruspjaldið eftir því hvernig stillingar eru í stillingum tollakerfis. Sjá nánari lýsingu hér.

Vöruverð:

Verð vöru. Erfist frá innkaupapöntun en hægt að breyta skv. vörureikningi.

Upprunalegur gjaldmiðill:

Gjaldmiðill vörulínu í innkaupapöntun.

Upphæð í ISK:

Umreiknuð upphæð í ISK.

Upphæð í gjaldmiðli skýrslu:

Umreiknuð upphæð í gjaldmiðli skýrslu.

Fjöldi:

Fjöldi vara. Erfist frá innkaupapöntun en hægt að breyta skv. vörureikningi.

Mælieining:

Mælieining fyllist út sjálfkrafa með réttum kóða viðurkenndum af tolli. Hægt er að mappa mælieiningum sem notaðar eru í innkaupum við þær sem eru notaðar hjá tolli. Sjá nánari lýsingu hér.

Línunúmer til tolls:

Línunúmer til tolls fyllist sjálfkrafa þegar tollskýrsla er villuathuguð. Hún sýnir línunúmer í skeytinu til tolls ef margar línur sameinast vegna sama tollskrárnúmers og upprunalandi.

Merki og númer:

Merki og númer erfast frá sniðmáti en hægt að breyta skv. vörureikningi.

Gámanúmer:

Gámanúmer á tollskýrslulínu, þarf að vera 11 stafa langt.

Nettóþyngd (kg):

Nettóþyngd (kg) fyllist sjálfkrafa inn út frá innkaupapöntun og vöruspjaldi en hægt er að breyta skv. vörureikningi. Það má færa inn 3 aukastafi.

Brúttóþyngd (kg):

Brúttóþyngd (kg) fyllist sjálfkrafa inn út frá innkaupapöntun og vöruspjaldi en hægt er að breyta skv. vörureikningi á tollskýrslulínu og þá uppfærist vöruspjaldið eftir því hvernig stillingar eru í stillingum tollakerfis. Sjá nánari lýsingu hér. Það má færa inn 3 aukastafi.

Verðmætisyfirlýsing (va-lykill):

Va-lykill á tollskýrslulínu, erfist frá sniðmáti.

Leyfi:

Hægt er að skrá leyfi, bönn og undanþágur per tollskýrslulínu. Ef tilvísunarnúmer hefur verið skráð í leyfistöflu þá erfist það í þessum reit. Sjá leyfislista undir Stofngögn - Leyfi.

Magntölur:

Magntölur erfast sjálfkrafa frá tollskrárnúmeri. Magn erfist frá nettóþyngd þegar um NET er að ræða. Það má færa inn 3 aukastafi. Það þarf að fylla inn handvirkt skv. vörureikningi þegar um aðrar magntölur er að ræða (t.d. LIT og PRO). Sjá nánari lýsingu hér.

Tegund tolls:

Tegund tolls er reiknað út frá tollskrárnúmeri og upprunalandi á línu.

Hlutfall pappa þekkt:

Ef hakað er í þennan reit þá er valið PP1 á tollskýrslulínu og það þarf að fylla inn í næsta reit "Þyngd pappaumbúða (kg)" skv. vörureikningi. Það gildir líka þegar á að skilgreina á engan pappa (PPX). Ef ekki er hakað í þennan reit mun kerfið velja PP2 og áætla þyngd pappaumbúða þegar tollskýrslan er prentuð og/eða send til tolls. Þessi reitur fyllist sjálfkrafa út frá vöruspjaldinu ef upplýsingar hafa verið tilgreindar þar.

Þyngd pappaumbúða (kg):

Þyngd pappaumbúða á tollskýrslulínu ef um PP1 eða PPX er að ræða.

Hlutfall plasts þekkt:

Ef hakað er í þennan reit þá er valið PL1 á tollskýrslulínu og það þarf að fylla inn í næsta reit "Þyngd plastumbúða (kg)" skv. vörureikningi. Það gildir líka þegar á að skilgreina ekkert plast (PLX). Ef ekki er hakað í þennan reit þá mun kerfið velja PL2 og áætla þyngd plastumbúða þegar tollskýrsla er prentuð og/eða send til tolls. Þessi reitur fyllist sjálfkrafa út frá vöruspjaldinu ef upplýsingar hafa verið tilgreindar þar.

Þyngd plastumbúða (kg):

Þyngd plastumbúða á tollskýrslulínu ef um PL1 eða PLX er að ræða.

Reikningsnúmer lánardrottins:

Fyllist sjálfkrafa inn út frá innkaupapöntun.

Tegund tilvísunarskjals:

Tegund tilvísunarskjals getur verið pöntun eða reikningur ef innkaupapöntun hefur verið bókuð á meðan á tollafgreiðslu stendur.

Línunúmer tilvísunar:

Línunúmer tilvísunarskjals fyllist sjálfkrafa út frá línunúmeri í innkaupapöntun eða reikningi.

Nr. móttöku:

Númer innkaupamóttöku fyrir línuna. Er notað til að athuga hvort varan hefur verið móttekin áður en unnið er úr tollsvari CUSTAR og til að tengja kostnaðarauka vegna aðflutningsgjalda við vörumóttöku.

Kóti tollkvóta:

Hægt er að skrá tollkvóta sem á að nota á tollskýrslulínu.

Tollkvóti notaður (kg):

Magn notað af tollkvótanum. Er fyllt út sjálfkrafa frá nettóþyngd á línunni.

Núverandi tollmeðferð:

Núverandi tollmeðferð erfist frá sniðmáti, t.d. 40 fyrir loftflutninga.

Fyrrverandi tollmeðferð:

Er notað eingöngu ef um er að ræða innflutning á sendingu sem var áður flutt út.

Tilvísunarnúmer fyrrverandi tollmeðferðar:

Er notað ef um er að ræða innflutning á sendingu sem var áður flutt út. Þá er fært inn númer útflutningsskýrslu.

Tollkvóti:

Er eingöngu notað ef vara sem er flutt inn ber tollkvóta.

Upplýsingar

Samskiptaloggur:

Upplýsingakassi sem sýnir EDI samskipti fyrir tollskýrslu, hvort sem um skeyti til tolls eða frá tolli er að ræða.

Dagsetningarstimpill:

Segir til um hvenær (dagsetning og tími) skeyti var sent til tolls eða lesið inn frá tolli.

EDI tegund:

Segir til um hvaða tegund skeytis er loggað. T.d. CUSDEC fyrir skeyti til tolls.

Átt samskipta:

Segir til um hvort skeytið var á leiðinni inn eða út til tolls.

Viðhengi

alt text

Skjöl:

Í þessum reit er hægt að skoða eða hlaða inn viðhengjum við tollskýrslu. Sjá nánari lýsingu hér.

Athugasemd:

Í þessum reit er hægt að skrá athugasemd á tollskýrslu. Sjá nánari lýsingu hér.

Nýjustu villur í tolli

EDI tegund:

Segir til um hvaða tegund EDI svars er að ræða (t.d. CUSGER, CUSERR eða CUSDOR).

Kóti villu:

Kóti villu sem er send frá tolli í skeyti.

Lýsing villu:

Stutt lýsing af villu sem er send frá tolli í skeyti. Villulista er hægt að finna undir Stofngögn - Villukótar.

Innkaupapantanir

Í þessum glugga er hægt að sjá allar tengdar innkaupapantanir við tollskýrslu.

alt text

Nr.:

Númer innkaupapöntunar.

Samtals magn:

Samtals magn á innkaupapöntunina.

Samtals móttekið magn.

Samtals móttekið magn á innkaupapöntunina.

Bóka móttöku valdra:

Bókar móttöku á völdum innkaupapöntunum.

Bóka móttöku allra:

Bókar móttöku á öllum innkaupapöntunum í þessum glugga.

Búa til vöruhúsamóttöku fyrir valda:

Bókar vöruhúsamóttöku á völdum innkaupapöntunum.

Búa til vöruhúsamóttöku fyrir allar:

Bókar vöruhúsamóttöku á öllum innkaupapöntunum í þessum glugga.

Fjarlægja:

Fjarlægja innkaupapöntun úr tollskýrslu.

Opna í Excel:

Opnar lista innkaupapantana tollskýrslu í Excel.

Aðgerðir á tollskýrslu

Bæta innkaupapöntun við skýrslu:

Sjá nánari lýsingu hér.

Endurreikna skýrslu:

Ef upplýsingum á tollskýrslu er breytt frá þeim upplýsingum sem eru í tengdum innkaupapöntunum eða öfugt þá birtir kerfið tilkynningu um ósamræmi. Til að fá tollskýrslu til að stemma við innkaupapöntun aftur þarf að velja aðgerðina "Endurreikna skýrslu" og þá uppfærist skýrslan skv. innkaupapöntun.

Færa línur inn handvirkt:

Þessi aðgerð er notuð af tollmiðlara til að skrá tollskýrslulínur á auðveldan máta.

Sjá nánari lýsingu hér.

Villuathuga skjal:

Sjá nánari lýsingu hér.

Senda skýrslu til tolls:

Sjá nánari lýsingu hér.

Sækja svar frá tolli:

Sjá nánari lýsingu hér.

Skoða þjappaðar línur:

Sjá nánari lýsingu hér.

Bóka tollskýrslu og innkaup:

Sjá nánari lýsingu hér.

Leiðrétta:

Sjá nánari lýsingu hér.

Búa til innkaupareikning út frá CUSTAR:

Sjá nánari lýsingu hér.

Prenta prófunarskýrslu:

Sjá nánari lýsingu hér.

Tollsvör:

Sjá nánari lýsingu hér.

Innkaupapantanir:

Innkaupapantanir tengdar tollskýrslu. Hægt að sjá númer á tollskýrslulínum.

Innkaupareikningar:

Innkaupapantanir tengdar tollskýrslu. Oftast innkaupareikningur vegna tollgjalda sem á eftir að bóka.

Bókaðir innkaupareikningar.

Innkaupareikningar tengdir á tollskýrslu. Getur verið innkaupareikningur vegna tollgjalda og vegna innkaupa.

Færslubók:

Opnar færslubók fyrir tollagjöld ef ákveðið var að færa þau í færslubók.

Allar villur frá tolli:

Opnar lista yfir allar villur sem hafa borist frá tolli þó svo ný skeyti hafa borist seinna.

Aðgerðir á línu

Skoða vöru:

Opnar vöruspjald frá línu.

Skoða tollnúmer:

Opnar tollskrá viðeigandi tollflokks.

Viðhengi

alt text

Skjöl:

Hægt er að hengja skjöl við tollskýrslu. Skjölin fylgja svo þegar tollskýrslan er bókuð.

Athugasemdir:

Hægt er að skrá athugasemd á tollskýrslu. Athugasemdin fylgir svo þegar tollskýrslan er bókuð.