Sækja EDI svör með verkraðarafærslu
Uppsetning í verkraðara
Búið er að setja upp sjálfvirkni í EDI samskiptum við tollinn og úrvinnslu þess í tollakerfinu. Hægt er að búa til verkraðarafærslu sem sækir EDI svör sjálfkrafa með reglulegu millibili.
Hlutategund í keyrslu:
Hér á að velja Codeunit.
Hlutakenni í keyrslu:
Hér á að velja RdN CC Deloitte Service sem er annaðhvort númer 10042362, 85012 eða 10040362 (það fer eftir uppsetningu).
Endurtekning:
Hér á að velja alla daga vinnuvikunnar.
Upphafstími:
Hér á að velja klukkan hvað keyrslan á að byrja á daginn.
Lokatími:
Hér á að velja klukkan hvað keyrslan á að enda á daginn.
Mínutufj. á milli keyrslu:
Best að hafa sem oftast, t.d. að setja 5 mínutur á milli keyrslna.
Svo þarf að setja verkraðarafærslu á tilbúið og fylgjast með að hún lendi ekki á villu.