Nota tollkvóta á tollskýrslu
Hér verður útskýrt hvenær hægt er að nota tollkvóta á tollskýrslu.
- Skrá tollkvóta í kerfinu. Sjá nánari lýsingu hér
- Búa til innkaupapöntun með vöru sem eru með tollflokk innan tollkvótans.
- Búa til tollskýrslu út frá innkaupapöntuninni og í tollskýrslulínu, velja tollkvótann. Kerfið fyllir svo sjálft magn á tollkvótanum út frá nettóþyngd á tollskýrslulínu.
- Klára tollskýrsluna og senda til tolls.
- Þegar skuldfærslan berst eru tollagjöld felld niður af tolli en kerfið býr til innkaupareikning á skattinn sem endar á 0. Inn í er kostnaðurinn vegna notkunar tollkvótans bókaður sem kostnaðarauki á innkaupamóttöku en jafnað út strax á fjárhagsreikningnum sem tilgreindur er í stillingum tollakerfis.
- Þegar tollskýrslan er bókuð, bókast allar tengdar innkaupareikningar og kostnaður við tollkvótann bókast á viðeigandi birgðafærslu. Tollkvótafærslan skráist á tollkvótann með stöðunni Bókað.