Búa til innkaupareikning út frá CUSTAR
Þegar skuldfærslan er komin frá tolli er hægt að búa til innkaupareikning fyrir aðflutningsgjöld. Innkaupareikningur er stofnaður með tollstjóra sem lánardrottni og aðflutningsgjöld sem kostnaðarauka.
Upplýsingar
Nr. lánardrottins:
Kennitala hjá tollstjóra.
Heiti lánardrottins:
Lýsing á tollstjóra.
Reikningsnr. lánardrottins:
Er fyllt sjálfkrafa út með sendingarnúmeri frá tollskýrslu.
Línur:
Gerð:
Gerð er alltaf Gjald(vara) sem er kostnaðarauki sem leggst á birgðir.
Nr.:
Númer á gjaldi (vara) er sótt í stillingum tollakerfis.
Lýsing/athugasemd:
Er fyllt út sjálfkrafa með lýsingu Aðflutningsgjöld til tolls.
Magn:
Magn er alltaf 1.
Innk. verð án VSK.
Upphæð aðflutningsgjalds.
Magn til úthlutunar:
Er alltaf 1 og tengist sjálfkrafa vörumóttöku á bak við tollskýrslulínu.
Úthlutað magn:
Er alltaf 1 og tengist sjálfkrafa vörumóttöku á bak við tollskýrslulínu.