Hoppa yfir í efnið

Sjálfvirk uppfærsla vöktunar

Hægt er að láta Creditinfo vöktun uppfærast sjálfvirkt í gegnum verkröð.

Það er gert með því að setja upp verkröð með codeunit 10041669 í AppSource (SaaS) útgáfu og 10039669 í OnPrem útgáfu.

Keyrslan gerir það sama og aðgerðin Uppfæra vöktun á Creditinfo vöktun spjaldinu. Hún felur í sér að sækja vöktunarsögu fyrir alla viðskiptamenn frá síðustu uppfærslu auk uppfærslu á CIP vöktun, lögbirtingarvöktun (e. Public notice), vanskilavöktun og alvarleikavöktun.