Innheimtubréf / áminningar
Kerfið getur búið til innheimtubréf eða áminningu fyrir viðskiptamenn með útistandandi skuld.
Hér að neðan verður útskýrt hvernig hægt er að stofna og senda innheimtubréf til viðskiptavina.
Setja upp skilmála innheimtubréfa
- Opna Skilmálar innheimtubréfa.
- Stofna skilmála til að geta úthlutað þeim á hvern viðskiptamann.
- Hægt er að stofna Stig innheimtubréfa til að reikna biðtíma, vanskilagjald o.s.frv.
Úthluta skilamála innheimtubréfa til viðskiptavina
- Opna viðskiptamannaspjald.
- Færa viðeigandi skilmála innheimtubréfa undir flipanum Greiðslur.
Stofna innheimtubréf
- Opna Innheimtubréf.
- Velja Vinnsla - Stofna innheimtubréf og fylla inn í Bókunardags. og Dags. fylgiskjals fyrir stofnuðun innheimtubréfa.
- Kerfið byrjar að búa til innheimtubréf.
- Listi yfir stofnuð innheimtubréf birtist.
- Opna innheimtubréfið til að sjá á hvaða gjaldföllnum færslum bréfið byggist.
Senda innheimtubréf
- Í listanum yfir innheimtubréf, velja Vinnsla - Útgáfa. Velja Email eða Prentara og svo bókunardags. innheimtubréfs.
- Ef Email var valið, sendist innnheimtubréfið sem PDF í tölvupósti á netfangið sem tilgreint er á viðskiptamannaspjaldi. Annars sækir kerfið skýrsluna.
- Hægt er að senda mörg innheimtubréf í einu með því að merkja þau í listanum og velja Vinnsla - Útgáfa.
- Send innheimtubréf hverfa úr listanum Innheimtubréf en þau er hægt að skoða í listanum Send innheimtubréf.