Skýrsluval
Hægt er að velja útlit skýrslu per tegund skjals. Microsoft hefur búið til mismunandi skýrslur t.d. fyrir sölureikninginn. Hér mun Skýrsluval - Sala vera tekin sem dæmi.
- Leitum að skýrsluvali í leitarglugga.
- Veljum Skýrsluval - Sala.
- Veljum notkun t.d. Reikningur.
- Veljum kenni skýrslu t.d. 1306.
- Ef það á að nota þessa skýrslu fyrir tölvupóst þarf að haka í þá reiti.
- Ef það á að nota standard skýrsluna þá þarf ekki að velja neitt í reitnum Lýsing á útliti meginmáls tölvupósts.
- Ef það á að nota sérsniðið útlit þá þarf að velja það í reitnum Lýsing á útliti meginmáls tölvupósts. Sjá nánari lýsingu hér.