Leiðrétta birgðakostnað/verð
Um er að ræða skýrslu nr. 795 og notkun þess til að leiðrétta beina kostnaði á mörgum vörum í einu.
Keyrslan breytir innihaldi reits á birgðaspjaldi með því að margfalda núverandi innihald með stuðul sem er tilgreindur í skýrsluformi.
- Leita að Leiðr. birgðakostnað/verð í leitarglugga.
- Í reitnum Leiðrétta á að velja Birgðaspjald.
- Í reitnum Leiðr. reit á að velja Kostnaðarverð sem er í raun reiturinn Ein.verð á birgðaspjaldinu. Aðrar möguleikar eru: Framlegðar%, Óbein kostnaðar%, Síðasta innk.verð og Staðlað kostn.verð.
- Velja leiðréttingarstuðull, 1 þýðir 100% þannig að til að hækka um 50% þarf að setja inn 1,5.
- Hægt er að afmarka á vöru eða keyra skýrsluna á öllum vörum.
- Tökum dæmi um vöruspjald. Þar er ein.verð 65.260 kr.
- Keyrum skýrsluna til að hækka einingaverð um 50%.
- Ein.verð á birgðaspjaldinu breytist í 97.890 kr.
- Sama er hægt að gera fyrir hina reitina á birgðaspjaldinu.