Víddir á fjárhagsgrunni
Hér eru leiðbeiningar um hvernig á að setja upp víddir á fjárhagsgrunni.
- Opna Fjárhagsgrunnur og opna flipann Víddir.
- Setja inn Altæk vídd 1 og 2.
- Flýtivídd 1 og 2 fyllast sjálfkrafa með sömu gildum og í Altæk vídd 1 og 2.
- Setja inn fleiri flýtivíddir ef við á.
Breyta altækum víddum
- Opna Fjárhagsgrunn.
- Velja Aðgerðir - Breyta altækum víddum.
- Breyta gildi í Altæk vídd 1 til dæmis.
- Velja Í röð og Ræsa.
- Fara til baka í fjárhagsgrunn og sjá breytinguna.
- Nú eru nýju altæku víddirnar settar upp í fjárhagsgrunn.