Bókhaldið í erlendri mynt og annar skýrslugjaldmiðill
Ef fyrirtækið er með bókahald í erlendri mynt þarf að setja upp ISK sem annar skýrslugjaldmiðill til að geta séð upphæðir í ISK auk þess að skila VSK í ISK.
- Opna fjárhagsgrunnur.
- Bæta við ISK í reitinn Annar skýrslugjaldmiðill.
- Í glugganum sem opnast, setja ISK í annar skýrslugjaldmiðill, númer fylgiskjals og velja fjárhagsreikning fyrir óráðstafað eigið fé. Velja svo Í lagi.
- Ef þessi breyting er gerð eftir að byrjað er að bóka í kerfinu, kemur þessi melding upp.
- Nú er hægt að bæta við reitinn Annar gjaldmiðill - Upphæð til að sjá upphæð í grunngjaldmiðli og upphæð í öðrum gjaldmiðli.
- Í öllum skýrslum sem innihalda upphæðir úr fjárhagnum er hægt að haka í reitinn Sýna upphæðir í öðrum gjaldmiðli.