Útgreiðslubók
Útgreiðslubók getur verið notuð bæði fyrir millifærslur og greiðslu krafna. Auk þess getur útgreiðslubók verið notuð fyrir erlendar greiðslur.
Útgreiðsla myndar línu í útgreiðslubók og reikningur sem er greiddur er settur sjálfkrafa á jöfnunarnúmer.
Upplýsingar
Reitur | Lýsing |
---|---|
Staða | Lýsir stöðu greiðslu í banka. "Ósend" meðan greiðsla hefur ekki verið send í banka, "Sent í banka" eftir sendingu. |
Er jöfnuð | Gefur til kynna að greiðsla er jöfnuð við lánardrottnafærslu. |
Bókunardags | Bókunardagsetning greiðslu til að nota þegar bókað er í fjárhag. |
Gjalddagi | Gjalddagi reiknings eða krafna sem eru greiddar. |
Eindagi | Eindagi reiknings eða krafna sem eru greiddar. |
Dags. fylgiskjals | Dags. fylgiskjals reiknings eða krafna sem eru greiddar. |
Tegund fylgiskjals | Hér tegund alltaf Greiðsla. |
Númer fylgiskjals | Númer sem kemur sjálfkrafa úr númeraröð sem var tilgreind á fh. færslubókarkeyrslu. |
Númer utanaðkomandi skjals | Númer utanaðkomandi skjals á útgreiðslu. |
Tegund reiknings | Alltaf Bankareikningur á línu sem fer til banka. |
Reikningur nr. | Bankareikningsnúmer sem greiðslan er greidd frá. |
Lýsing | Lýsing sem fylgir greiðslu. Notandi getur breytt í frjálsan texta. |
Gjaldmiðilskóti | Kóti gjaldmiðils á greiðslu. Ef kóti er tómur þá er um að ræða grunngjaldmiðil kerfis. |
Alm. bókunartegund | Erfist úr númeri reiknings. |
Alm. viðsk. bókunarflokkur | Erfist úr númeri reiknings. |
Alm. vörubókunarflokkur | Erfist úr númeri reiknings. |
VSK viðsk. bókunarflokkur | Erfist úr númeri reiknings. |
VSK vörubókunarflokkur | Erfist úr númeri reiknings. |
Upphæð | Upphæð greiðslna. |
Tegund mótreiknings | Mótreikningur fyrir greiðslu. Í útgreiðslubók stofnum við mótfærslu sem sér línu þannig að við notum ekki tegund mótreiknings og mótreikningsnúmer á greiðslulínu. |
Mótreikningur nr. | Mótreikningur fyrir greiðslu. Sama og að ofan. |
Alm. bókunartegund mótreiknings | Erfist úr númeri mótreiknings. |
Alm. viðsk. bókunarflokkur mótreiknings | Erfist úr númeri mótreiknings. |
Alm. vörubókunarflokkur mótreiknings | Erfist úr númeri mótreiknings. |
VSK viðsk. bókunarflokkur mótreiknings | Erfist úr númeri mótreiknings. |
VSK vörubókunarflokkur mótreiknings | Erfist úr númeri mótreiknings. |
Tegund jöfnunar | Tilgreinir hvaða jöfnun hefur verið skráð á greiðslu. |
Kenni jöfnunar | Númer fylgiskjals sem jafnast við greiðslu. |
Gjalddagi jöfnunar | Gjalddagi fylgiskjals sem jafnast við greiðslu. |
Tegund bankagreiðslu | Fyllt út með rafrænni greiðslu sjálfkrafa. |
Aðferð greiðslu | Valið er á milli millifærslu eða kröfu. Kerfið velur það sjálfkrafa þegar greiðsla er búin í keyrslu. |
Aðgerðir á útgreiðslubók
Aðgerð | Lýsing |
---|---|
Greiðslutillögur til lánardrottna | Fyllir útgreiðslubók með greiðslutillögum til lánardrottna. Sjá nánari lýsingu hér. |
Athuga greiðslur | Athugar hvort greiðslur eru gildar áður en þær eru sendar í banka. T.d. hvort upphæðin sé í mínus, hvort upphæðin sé ekki örugglega stærri en 0 o.s.frv. |
Greiðslupplýsingar | Birtir greiðsluupplýsingar sem eru skráðar á útgreiðslu (bankanúmer, höfuðbók og númer bankareiknings m.a.). Sjá nánari lýsingu hér. |
Senda bunka í banka | Sendir útgreiðslubunka í banka og þá breytist staðan á bankareikningslínu í Sent í banka. |
Bóka | Bóka útgreiðslubók. Það er bara hægt að bóka útgreiðslubók þegar allar línur eru með stöðu Staðfest í banka. |
Lesa inn ógreiddar kröfur | Kerfið les inn allar ógreiddar kröfur í banka. Sjá nánari lýsingu hér. |
Jafna færslur | Hægt er að handjafna færslur í útgreiðslubók ef kerfið hefur ekki fundið jöfnunarnúmer. |
Para við kröfur | Ef ekki er hakað í "Para við kröfur" í Stillingar - Útgreiðslur þá mun kerfið leggja til millifærslu. Það er hægt að velja þessa aðgerð eftir á í útgreiðslubók og þá mun aðferð greiðslu breytast úr millifærslu í kröfu ef krafa er til í banka fyrir sömu lánardrottnafærslu. Sjá nánari lýsingu hér. |
Endurnúmera fylgiskjöl | Ef notandi hefur eytt einhverjum línum í útgreiðslubók þá eru fylgiskjalsnúmer ekki lengur í réttri röð. Þá er hægt að velja aðgerðina "Endurnúmera fylgiskjöl" til að endurnúmera í réttri röð og svo er hægt að bóka bókina. |
Búa til millifærslu | Aðgerð til að búa til einfalda millifærslu. Sjá nánari lýsingu hér. |
Athuga stöðu bunka | Þegar útgreiðslubók hefur verið send til banka, fær hann stöðu "Send í banka" nema ef það er stilling í banka um að greiða bunka strax. Ef bunki bíður samþykkis til greiðslu í heimabanka þarf fyrst að samþykkja hann þar og svo er athugað stöðu bunka til að fá stöðuna "Staðfest frá banka". |
Setja inn mismunalínur | Ef einhver gjöld hafa lagst á kröfu í banka er greiðslan hærri en upphæð lánardrottnafærslu. Því er hægt að setja inn mismunalínur til að bóka aukagjöld (dráttarvexti, vanskilagjöld o.s.frv.) á rétta bókhaldslykla, skv. Stillingar - Útgreiðslur. Kerfið mun reyna að setja þær inn sjálfkrafa en ef það gerist ekki er hægt að velja aðgerðina eftir á. |
Uppfæra kröfur | Ef útgreiðslubók hefur verið mynduð og færslur geymdar í bók milli daga er hægt að uppfæra kröfur í bók þannig að ef gjöld hafa lagst á kröfu þá uppfærist það í bókinni. |
Staðfesta tilvist allra bankareikninga | Keyrir á alla bankareikninga sem eru í útgreiðslubók (vegna millifærslu) og staðfestir tilvist þeirra. Þetta kemur í veg fyrir að fá villu frá banka ef einhver bankareikningur er rangur. |