Hoppa yfir í efnið

Stillingar - Útgreiðslur

alt text

Útgreiðslur

Reitur Lýsing
Hlaða inn valkröfum Skilgreinir hvort valkröfur á greiðanda séu hlaðnar inn frá banka.
Mesti mism. við jöfn. sölur. Skilgreinir mesta mismun sem má vera á jöfnun á sölureikningum.
Mesti mism. við jöfn. innkr. Skilgreinir mesta mismun sem má vera á jöfnun á innkaupareikningum.
Sjálfg. flokkur erlendra greiðslna Ef framkvæmd er erlend millifærsla er hún sett sjálfkrafa í þennan flokk þangað til annað er valið.
Greiða kostnað af erlendum greiðslum Ef hakað er í þennan reit þá skráir kerfið að kostnaður vegna erlendrar greiðslu mun reikningsfærast á greiðanda.
Auðkenni valkrafna Segir til um hvaða auðkenni þýði að krafa sé valkrafa.
Textalykill valkrafna Segir til um hvaða textalykil þýði að krafa sé valkrafa.
Sjálfvirk uppfærsla gengis Ef hakað er í þennan reit mun gengi uppfærast sjálfkrafa ef útgreiðslan er skráð á annarri dagsetningu en núverandi dagsetning.
Óheftur aðgangur að gengis uppfærslum Ef hakað er í þennan reit verður gengi sótt með fyrsta bankanotendanum fyrir hvern banka óháð hver biður um uppfærsluna.
Eitt fylgiskjalsnúmer á bók Ef hakað er við þennan reit verður eitt fylgiskjalsnúmer á öllum færslum í útgreiðslubók.
Mótreikningur gjalda Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikning kostnaður bókast í útgreiðslubók (t.d. vanskilagjald).
Mótreikningur vaxta Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikning vextir bókast í útgreiðslubók.
Númeraröð greiðslna Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir greiðslur á kröfum.
Para greiðsluuppástungur við kröfur Skilgreinir hvort para eigi greiðslutillögur í útgreiðslubók við kröfur frá banka.
Sjálfgefinn bankareikningur Hægt er að velja sjálfgefinn bankareikningur fyrir útgreiðslubók.
Senda útgreiðslu á eindaga Ef hakað er við þennan reit er notast við framvirka greiðsludagsetningu. Framvirk greiðsla greiðist þá sjálfkrafa á tilgreindum eindaga.

Erlendar greiðslur

alt text

Reitur Lýsing
Sjálfg. flokkur erlendra greiðslna Skilgreinir hvaða flokkur erlendra greiðslna er sjálfgefið í útgreiðslum.
Greiða kostnað viðtakanda Ef hakað er í þennan reit, mun útgreiðslan merkjast þannig í bankanum að greiðandi greiðir allan kostnað.
Sækja kostnað erlendra greiðslna Ef hakað er í þennan reit mun kostnaður við erlenda greiðslu vera lesinn inn í útgreiðslubók þegar erlend greiðsla er staðfest.
Reikningur kostnaðs erlendra greiðslna Fjárhagsreikningur til að bóka kostnað erlendra greiðslna á.
Bankareikningur kostnaðs erlendra greiðslna Sjálfgefinn bankareikningur fyrir kostnað af erlendum greiðslum. Landsbankinn: Þetta gildi er sent í bankann og notað til að bóka í útgreiðslubók. Arion: Þetta gildi er aðeins notað til að bóka í útgreiðslubók, til að stilla sérstakan kostnaðarreikning þarf að hafa samband við Arion.
Senda kvittun á tölvupóstfang Ef hak er í þessum reit, mun útgreiðslan merkjast þannig í bankanum að bankinn mun senda tölvupóst með kvittun til viðtakanda. Netfangið þarf að vera skráð á bankareikningi lánardrottins.