Hoppa yfir í efnið

Stillingar - Kröfur

Stillingar kröfugerð

alt text

Reitur Lýsing
Kröfu númeraröð Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir kröfur. Þarf að vera nákvæmlega 6 stafir að lengd.
Kröfubunka nr. röð Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir kröfubunka.
Lágmarks upphæð kröfu Skilgreinir lágmarks upphæð sem verður að vera á sölureikningi til að krafa sé búin til.
Tilkynningargjöld Skilgreinir tilkynningargjald kröfunnar. Þetta gjald bætist við upprunalega upphæð.
Annar kostnaður Skilgreinir annan kostnað sem á að bætast við á greiðsluseðli.
Athugasemd á greiðsluseðli Ef fyrirtæki vill láta birta sérstaka athugasemd á greiðsluseðli þá er fyllt út í þennan reit.
Innheimtuaðili Skilgreinir bankareikning sem er sjálfgefinn innheimtuaðili.
Gjalddagi Skilgreinir eftir hversu marga daga gjalddagi á kröfu er.
Lágmarks tímabil gjaldaga Stysta tímabil frá stofnun kröfu til gjalddaga.
Niðurfellingar dagur Skilgreinir eftir hve marga daga krafa er felld niður sjálfkrafa í banka ef hún hefur ekki verið greidd.
Birta viðvörun þegar aðgerð er valin Birtir viðvörun um að aðgerð hafi verið valin á kröfu.
Framkvæma aðgerð strax Framkvæmir aðgerðir og sendir í banka um leið og þær eru valdar á hverri kröfu fyrir sig.
Hlutagreiðsla leyfileg sjálfkrafa Ef hakað er í þennan reit, þá skilar það sér á öllum stofnuðum kröfum sem merkjast svo í banka.
Kennitölureitur viðskiptamanns Ef kennitölureitur á viðskiptamannaspjaldi er ekki sama og Nr. þá er hægt að skilgreina hér hvaða reitur inniheldur kennitölu.
Hámarksstærð kröfubunka Í hverjum kröfubunka mega ekki vera fleiri en 5000 kröfur þegar þær eru sendar í bankann.

Stillingar kröfugreiðslur

alt text

Reitur Lýsing
Heiti bókarsniðmáts Skilgreinir bókarsniðmát fyrir inngreiðslubók þar sem kröfugreiðslur eru sendar til bókunar.
Heiti bókarkeyrslu Skilgreinir nafn á bókarkeyrslu tengdu bókarsniðmáti.
Númeraröð greiðslna Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir greiðslur á kröfum.
Númeraröð fjármagns Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir greiðslur á vöxtum sem safnast hafa á kröfur.
Fjárhagsreikningur vaxta Skilgreinir hvaða fjárhagsreikning vextir bókast á í inngreiðslubók.
Fjárhagsreikningur gjalda Skilgreinir hvaða fjárhagsreikning gjöld bókast á í inngreiðslubók.
Fjárhagsreikningur fjármagnstekjuskatts Skilgreinir hvaða fjárhagsreikning fjármangstekjuskattur bókast á í inngreiðslubók.
Mótreikningur gjalda Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikningi innheimtukostnaður bókast.
Mótreikningur vaxta Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikningi vextir bókast.
Forskeyti númers utanaðkomandi fylgiskjals f. vexti Ekki má nota sama fylgiskjalsnúmer á fleiri en eina línu. Því er þessu forskeyti bætt við vexti.
Forskeyti númers utanaðkomandi fylgiskjals f. gjöld Ekki má nota sama fylgiskjalsnúmer á fleiri en eina línu. Því er þessu forskeyti bætt við gjöld.
Eitt fylgiskjalsnúmer á bók Ef hakað er við þá verður eitt fylgiskjalsnúmer á öllum færslum í inngreiðslubókinni.
Lýsing færslu innheldur tegund greiðslu Ef hakað er við þá mun lýsing á kröfugreiðslu sem bókað er á viðskiptavini og fjárhag innihalda tegund greiðslu.
Leyfa bókun á lokaða viðskiptamenn Ef hakað er við þá mun kerfið leyfa bókun kröfugreiðslu inn á viðskiptamann sem hefur verið merktur lokaður.

Sjálfvirkni

Stillingar - Kröfur - Sjálfvirkni

Reitur Lýsing
Sækja, færa og/eða bóka Þessi reitur er notaður í verkraðarfærslu til að sækja kröfugreiðslur sjálfkrafa. Möguleikar eru: Sækja, Sækja og færa í inngreiðslubók eða Sækja, færa í inngreiðslubók og Bóka inngreiðslubókina.
Fjöldi daga aftur í tímann Þennan reit er hægt að nota í verkraðarfærslu til að skilgreina fjölda daga aftur í tímann sem kerfið á að sækja kröfugreiðslur sjálfkrafa. Skrifa skal fjölda daga í heiltölum og setja 'D' á eftir, eins og t.d. svona: 30D.

Verkraðarfærslur - Aðgerðir krafa

Reitur Lýsing
Leyfa aðgerðatillögur á lokaðar kröfur Ef hakað er við þá leyfir kerfið aðgerðatillögur á lokaðar kröfur.
Sækja aðgerðatillögur á kröfur fram að dagsetningu Ef leyft er að sækja aðgerðatillögur á lokaðar kröfur, er hægt að nota þennan reit til þess að tilgreina dagsetningu sem kerfið á að sækja aðgerðatillögur fram að. Skiljið eftir tóman reit til þess að sækja aðgerðatillögur á alla kröfuhausa.