Opna greiðslusafn
Aðgerðin opnar kröfugreiðslur sem hafa verið settar í geymslu.
Upplýsingar
Reitur | Lýsing |
---|---|
Línurnr. | Línunúmer kröfugreiðslu í töflu. |
Kröfunúmer | Kröfunúmer sem var greitt fyrir. |
Eindagi | Eindagi krafna sem var greitt fyrir. |
Reikn. færist á viðskm. | Kennitala viðskiptamanns sem fékk kröfu. |
Upphæð | Upphæð krafna sem var greitt fyrir. |
Áminningargjald | Upphæð áminningargjalds. |
Vanskilagjald | Upphæð vanskilagjalds sem lagðist á kröfu. |
Dráttarvextir | Upphæð dráttarvaxta sem lögðust á kröfu. |
Upphæð lögð inn | Heildarupphæð greidd á kröfu (getur verið upphæð reiknings auk ýmissa gjalda og dráttarvaxta). |
Fjármagnstekjuskattur | Upphæð fjármagnstekjuskatts sem var greiddur af dráttarvöxtum sem lögðust á kröfu. |
Greiðslur | Upphæð greiðslna á kröfu. |
Annar kostnaður | Upphæð annars kostnaðar sem var greiddur með kröfu (pappírlaust gjald?). |
Annar grunnkostnaður | Upphæð annars grunnkostnaðar sem var greiddur með kröfu (pappírlaust gjald?). |
Upph. upphaflegrar kröfu | Upphæð kröfu þegar hún var stofnuð (getur hafa breyst ef upphæð kröfu hefur breyst og krafan uppfærð svo í banka). |
Upphæð gegn kröfu | Greidd upphæð mínus öll aukagjöldin og kostnaður. |
Gjalddagi | Gjalddagi krafna. |
Dagsetning færslu | Dagsetning kröfugreiðslu. |
Bókunardagsetning | Bókunardagsetning fylgiskjals sem krafa byggist á. |
Þín tilvísun | Kennitala viðskiptamanns er sett inn sem tilvísun. |
Kröfuhafi | Kennitala kröfuhafa (úr stofngögn fyrirtækisins). |
Kenni viðskiptamanns | Kennitala viðskiptamanns. |
Auðkenni | Innheimtuauðkenni fyrir kröfuna. |
Banki nr. | Númer útibús bankareiknings þar sem krafa var stofnuð. |
Höfuðbók | Höfuðbók sem var notuð til að stofna kröfu. Kemur úr reitnum "Höfuðbók" í Stillingar - Kröfur. |
Innheimtuaðili | Bankareikningur sem krafa var stofnuð í. |
Flokkunarkóti | Flokkunarkóti frá bankanum. |
Innlausnarbanki | Banki greiðanda. |
Bunka nr. | Bunka númer frá bankanum. |
Reikningur | Reikningur á greiðsluseðli. Er samansett af bankanúmeri, höfuðbók og kröfunúmeri. |
Innflutningstími | Dagsetning sem kröfugreiðsla var sett í geymslu. |
Kröfubunkanúmer | Númer kröfubunka sem krafa var stofnuð í. |