Hoppa yfir í efnið

Listi kröfulína

alt text

Upplýsingar

Reitur Lýsing
Kröfunúmer Númer kröfu skv. númeraröð sem tilgreind er í Stillingar - Kröfur.
Kröfulínu nr. Ef krafa er byggð á fleiri en einum reikning þá stofnast kröfulínu nr. per reikning. Fyrsti reikningur fær nr. 1.
Bókunardagsetning Bókunardagsetning fylgiskjals sem krafa byggist á.
Tegund fylgiskjals Tegund fylgiskjals sem krafa byggist á (oftast Reikningur).
Númer fylgiskjals Númer fylgiskjals sem krafa byggist á (sölureikningsnúmer).
Gjalddagi Gjalddagi fylgiskjals sem krafa byggist á.
Upphæð Upphæð fylgiskjals sem krafa byggist á.
Eftirstöðvar Eftirstöðvar fylgiskjals sem krafa byggist á (ef upprunalegri upphæð hefur verið breytt með kreditreikningi eða hlutagreiðslu). Ef krafa er greidd og kröfugreiðsla bókuð í fjárhag, þá eru eftirstöðvar 0.
Upphafleg upphæð Upphafleg upphæð fylgiskjals sem krafa byggist á (ef fylgiskjal hefur ekkert breyst eru upphæð og upprunaleg upphæð eins svo sem eftirstöðvar).
Samskiptastaða Á að vera sama og í kröfuhaus.
Staða kröfu Staða kröfu í banka (möguleikar eru Opin, Greidd, Niðurfelld, Hlutagreidd).
Nr. viðskm. færslu Númer færslu fyrir fylgiskjal.
Bunka nr. Númer kröfubunka sem krafa var stofnuð í.