Hoppa yfir í efnið

Kröfuspjald

alt text

Almennt

Reitur Lýsing
Bunka nr. Nr. kröfubunka sem krafa var stofnuð í.
Nr. Númer kröfu skv. númeraröð sem tilgreint er í Stillingar - Kröfur.
Kröfunúmer frá banka Númer sem er einkenni kröfu í banka.
Stofntími Dagsetning og tími sem krafa var stofnuð.
Lýsing Lýsing fyllist sjálfkrafa með heiti viðskiptamanns eftir stofnun kröfu.
Hlutagreiðsla leyfileg Segir til um hvort hlutagreiðsla sé leyfileg eða ekki fyrir þessa kröfu, og er gildið sem ræður þegar kröfur eru sendar til banka. Ef hlutagreiðsla er almennt leyfileg skv. Stillingar - Kröfur þá erfist þetta hak þaðan. Ef svo er ekki en hlutagreiðsla er leyfileg skv. bankastillingum viðskiptamanns þá erfist þetta hak þaðan. Hægt er að taka hakið af fyrir einstaka kröfu þó svo það erfðist frá stillingunum.

Viðskiptamenn

Reitur Lýsing
Selt-til viðskiptam. nr. Nr. viðskiptamanns sem var í reitnum "Selt-til viðskiptam." á sölureikningi.
Seljist til viðskiptam. nafn Nafn viðskiptamanns sem var í reitnum "Selt-til viðskiptam. nafn" á sölureikningi.
Kenni viðskiptamanns Nr. viðskiptamanns sem fær kröfu.
Reikn.færist á viðskm. Nr. viðskiptamanns sem var í reitnum "Reikn.færist á viðskm." á sölureikningi.
Reikn.færist á viðskm. nafn Nafn viðskiptamanns sem var í reitnum "Reikn.færist á viðskm. nafn" á sölureikningi.

Staða kröfu

Reitur Lýsing
Gjalddagi Gjalddagi kröfu. Kemur úr dagsetningu sem var sett í aðgerðinni "Mynda kröfu" eða er vinnudagsetning ef var skilið eftir autt í aðgerðinni "Mynda kröfu".
Eindagi Eindagi kröfu. Kemur úr dagsetningu sem var sett í aðgerðinni "Mynda kröfu" eða er vinnudagsetning ef var skilið eftir autt. Ef viðskiptamaður er með sérstakan kóta bankakerfisgrunns þá hefur það forgang. Annars ef gildi hefur verið sett í Stillingar - Kröfur þá hefur það forgang.
Staða kröfu Segir til um stöðu í banka. Möguleikar eru: tómt (ef hefur ekki verið sent), Opin (krafa send), Greidd (krafa greidd í banka), Hlutagreidd (krafa hlutagreidd í banka), Niðurfelld (krafa felld niður í banka).
Staða Samskiptastaða.
Niðurfelling send þann Dagsetning sem notandi sendi niðurfellingarbeiðni í banka.
Niðurfellingardagur Sá dagur sem krafa verður felld niður sjálfkrafa í bankanum ef hún er ennþá ógreidd.
Dagsetning framkvæmdar greiðslu Dagsetning sem kröfugreiðsla var framkvæmd.
Frestur Tengist Mótus kerfinu.
Upphafleg upphæð Upphafleg upphæð kröfu (upphæð kröfu við stofnun).
Upphæð Núverandi upphæð kröfu (getur hafa verið hlutagreidd eða eftirstöðvar reiknings hafa breyst síðan).
Greitt upphæð Upphæð sem hefur verið greidd á kröfu.
Eftirstöðvar Eftirstöðvar kröfu ef upphæð er ekki sama og upprunaleg upphæð.
Aðgerð Við stofnun kröfu verða allar kröfur með stöðu Stofna. 4 möguleikar eru í boði: tómt, stofna, uppfæra, fella niður. Hægt er að velja handvirkt í reitnum per kröfu eða láta reitinn fyllast út frá aðgerð (t.d. Fella niður valda kröfu).
Breytingartími Dagsetning og tími sem kröfu var breytt eftir stofnun. Ef sama dagsetning er í stofntíma og breytingartíma hefur kröfu ekki verið breytt eftir stofnun.
Dagsetningarafmörkun Er ónotað.
Milliinnheimta Aðgerð Tengist Mótus kerfinu.

Bankaupplýsingar

Reitur Lýsing
Bankareikningur Bankareikningur sem krafa var stofnuð í.
Banki nr. Númer banka fyrir bankareikning.
Höfuðbók Höfuðbók bankareiknings.
Auðkenni Innheimtuauðkenni úr bankanum.
Tilvísun yðar Fyllist sjálfkrafa með númer kröfu.
Síðast sótt frá banka Dagsetningin þegar upplýsingar voru sóttar frá banka
Heildarupphæð til greiðslu Upplýsingar eins og þær eru skráðar í bankanum
Tilkynningargjald Upplýsingar eins og þær eru skráðar í bankanum
Vanskilagjald Upplýsingar eins og þær eru skráðar í bankanum
Annar kostnaður Upplýsingar eins og þær eru skráðar í bankanum
Annar vanskilakostnaður Upplýsingar eins og þær eru skráðar í bankanum
Dráttarvextir Upplýsingar eins og þær eru skráðar í bankanum

Flipi - Samskipti

Reitur Lýsing
Samskiptastaða Segir til um hvort krafa hefur verið send í banka eða ekki.
Samskipta villa Ef krafa hefur lent á villu í bankasamskiptum er hakað í þennan reit.
Samskipta villa nr. Ef krafa hefur lent á villu í bankasamskiptum er reiturinn fylltur með villunúmeri.
Samskipta villa lýsing Ef krafa hefur lent á villu í bankasamskiptum er reiturinn fylltur með villulýsingu.
Samskipta færslur tegund Ef krafa hefur lent á villu í bankasamskiptum er reiturinn fylltur með tegund.

Flipi - Listi kröfulína

Úr lista kröfulína er hægt að opna viðskiptamannafærslu sem krafa byggist á.

Sjá útskýringu á reitum í lista kröfulína hér.