Hoppa yfir í efnið

Kröfugreiðslur

Undir "Rdn kröfugreiðslur" opnast listi yfir kröfugreiðslur í kerfinu:

alt text

Upplýsingar

Reitur Lýsing
Ekki hreyfa færslu Notað fyrir kröfugreiðslur sem hafa verið færðar í inngreiðslubók og bókaðar í fjárhag. Hakað sjálfkrafa þegar kröfugreiðsla hefur verið bókuð þannig að kerfið bóki ekki tvisvar sömu kröfugreiðslu.
Línurnr. Línunúmer kröfugreiðslu í töflu.
Kröfunúmer Kröfunúmer sem var greitt fyrir.
Eindagi Eindagi krafna sem var greitt fyrir.
Reikn. færist á viðskm. Kennitala viðskiptamanns sem fékk kröfu.
Upphæð Upphæð krafna sem var greitt fyrir.
Áminningargjald Upphæð áminningargjalds.
Vanskilagjald Upphæð vanskilagjalds sem lagðist á kröfu.
Dráttarvextir Upphæð dráttarvaxta sem lögðust á kröfu.
Upphæð lögð inn Heildarupphæð greidd á kröfu (getur verið upphæð reiknings auk ýmissa gjalda og dráttarvaxta).
Fjármagnstekjuskattur Upphæð fjármagnstekjuskatts sem var greiddur af dráttarvöxtum sem lögðust á kröfu.
Greiðslur Upphæð greiðslu á kröfu fyrir utan gjöld.
Annar kostnaður Upphæð annars kostnaðar sem var greiddur með kröfu svo sem seðilgjald.
Annar grunnkostnaður Upphæð annars vanskilakostnaðar sem var greiddur með kröfu.
Upph. upphaflegrar kröfu Upphæð kröfu þegar hún var stofnuð (getur hafa breyst ef upphæð kröfu hefur breyst og krafa uppfærð í banka).
Upphæð gegn kröfu Greidd upphæð mínus öll aukagjöldin og kostnaður.
Gjalddagi Gjalddagi krafna.
Dagsetning færslu Dagsetning kröfugreiðslu.
Bókunardagsetning Bókunardagsetning fylgiskjals sem krafa byggist á.
Tilvísun yðar Kennitala viðskiptamanns er sett inn sem tilvísun.
Kröfuhafi Kennitala kröfuhafa (úr stofngögnum fyrirtækis).
Nr. kúnna Kennitala viðskiptamanns sem greiðir kröfu.
Auðkenni Innheimtuauðkenni fyrir kröfu.
Banki nr. Númer útibús bankareiknings þar sem krafa var stofnuð.
Höfuðbók Höfuðbók sem var notuð til að stofna kröfu. Kemur úr reitnum Höfuðbók í Stillingar - Kröfur.
Innheimtuaðili Bankareikningur sem krafa var stofnuð í.
Flokkunarkóti Flokkunarkóti frá bankanum.
Innlausnarbanki Banki greiðanda.
Bunka nr. Bunka númer frá bankanum.
Reikningur Reikningur á greiðsluseðli. Er samansett af bankanúmeri, höfuðbók og kröfunúmeri.
Lesið inn Dagsetning sem kröfugreiðsla var lesin inn í kerfið (úr banka).
Kröfubunkanúmer Númer kröfubunka sem krafa var stofnuð í.

Upplýsingakassi - Staða

Reitur Lýsing
Bókað Stendur "Já" ef kröfugreiðslur hafa verið bókaðar í inngreiðslubók. Ef smellt er á "Já" opnast bankareikningsfærslur sem tilheyra kröfugreiðslu sem notandi er staddur í.
Lesið yfir í inngreiðslubók Stendur "Já" ef kröfugreiðslur hafa verið færðar yfir í inngreiðslubók.

Aðgerðir á kröfugreiðslum

Aðgerð Lýsing
Sækja kröfugreiðslur úr banka Þessi aðgerð sækir nýjar kröfugreiðslur úr banka. Sjá nánari lýsingu hér.
Færa kröfugreiðslur í inngreiðslubók Þessi aðgerð færir kröfugreiðslur í inngreiðslubók til bókunar í fjárhag. Sjá nánari lýsingu hér.
Færa greiðslur í greiðslusafn Þessi aðgerð setur eldri kröfugreiðslur í geymslu. Sjá nánari lýsingu hér.
Opna greiðslusafn Þessi aðgerð opnar kröfugreiðslur sem hafa verið settar í geymslu. Sjá nánari lýsingu hér.