Hoppa yfir í efnið

Kröfubunki

Til að stofna nýjan kröfubunka þarf notandi að fylla inn eftirfarandi reiti á flipanum "Kröfubunki".

alt text

Flipi - Almennt

Reitur Lýsing
Nr. Númer bunka kemur sjálfkrafa inn út frá númeraseríu sem valin var í spjaldinu Stillingar - Kröfur.
Lýsing Frjáls lýsing fyrir bunka, fyllt af notanda sem stofnar bunka.
Innheimtuaðili Bankareikningur sem valinn var fyrir bunka. Kröfur verða stofnaðar fyrir þennan bankareikning.
Hlutagreiðsla leyfileg Býður upp á að stilla handvirkt hvort hlutagreiðslur séu leyfilegar fyrir þennan bunka eða ekki. Ef hlutagreiðsla er almennt leyfileg skv. Stillingar - Kröfur þá erfist þetta hak þaðan. Ef gildinu er breytt breytist samnefnt gildi á öllum kröfum, en það er gildið á kröfunni sjálfri sem er svo sent til bankans.
Stofnað Fyllist sjálfkrafa með dagsetningu og tíma sem kröfubunki var stofnaður.
Stofnað af Fyllist sjálfkrafa með kenni notanda sem stofnar kröfubunka.
Allir reikningar sendir í bankann Gildið í reitnum er Já ef engar kröfulínur með fylgiskjal af gerð reikningur eða kreditreikningur finnast í bunkanum sem hafi reitinn Reikningur sendur sem Nei. Ef ýtt er á gildið í reitnum opnast loggur tilrauna til sendinga kröfureikninga afmarkaður á bunkann.
Lokaður Hægt er að haka í þennan reit ef má ekki mynda frekari kröfur á þennan kröfubunka. Gott er að hafa reglu á myndun kröfubunka, t.d. fyrir tímabil eða hvern viðskiptavin.

Upplýsingakassi - Upplýsingar um keyrslu

Reitur Lýsing
Upphæð Heildarupphæð krafna sem eru í kröfubunka.
Greidd upphæð Greidd upphæð af kröfum sem eru í kröfubunka.
Fjöldi krafa Fjöldi krafa í kröfubunka.
Greitt % Sýnir hlutfall á milli greidd upphæð og upphæð krafna. Þegar greitt % er komin í 100%, er kröfubunki að fullu greiddur.

Aðgerðir á kröfubunka

Aðgerðirnar eru útskýrðar í textanum fyrir neðan, en hér er tafla yfir helstu aðgerðir:

Aðgerð Lýsing
Mynda kröfur Myndar kröfur skv. afmörkun í kröfubunka. Sjá nánari lýsingu hér.
Aðgerðatillögur á kröfubunka Keyrir á allar kröfur innan kröfubunka og leggur til aðgerðir á kröfu. Sjá nánari lýsingu hér.
Framkvæma aðgerðir Framkvæmir aðgerðir á kröfu sem eru í reitnum "Aðgerð". Sjá nánari lýsingu hér.
Lesa kröfur frá banka Sækir opnar kröfur frá banka inn í kröfubunka. Sjá nánari lýsing hér.
Athuga stöðu kröfubunka Athugar stöðu kröfubunka í banka þannig að staða krafna uppfærist skv. stöðu í banka.
Sækja kröfustöðu Sækir kröfustöðu í banka á öllum opnum kröfum í kröfubunka. Sjá nánari lýsingu hér.
Stofna í milliinnheimtu Er tengt Mótus kerfinu.
Uppfæra valda kröfu Uppfærir valda kröfu skv. eftirstöðvum viðskiptamannafærslu. Sjá nánari lýsingu hér.
Fella niður valda kröfu Merkja valda kröfu við aðgerðina "Fella niður". Sjá nánari lýsingu hér.
Hætta við valda aðgerð Hreinsar reitinn "Aðgerð á alla kröfur" í kröfubunka. Sjá nánari lýsingu hér.
Prenta greiðsluseðla Prentar alla greiðsluseðla í kröfubunka.
Skipta bunka Ef fjöldi krafa í bunkanum eru fleiri en leyfilegt er er hægt að keyra þessa aðgerð til að skipta bunkanum niður. Flýtileið fyrir aðgerðina er Ctrl + Shift + S.
Dreifa kröfu Hægt er að skipta einni kröfu upp í margar kröfur. sjá Nánari lýsingu hér