Stillingar - Kröfur
Stillingar kröfugerð
Kröfu númeraröð:
Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir kröfur. Þarf að vera nákvæmlega 6 stafir að lengd. Best er að nota 000001 - 999999 til að þurfa ekki að endurtaka númeraröðina eins oft.
Kröfubunka nr. röð:
Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir kröfubunka. Má vera á hvaða format-i sem er en merkja skal við Sjálfgefin nr.röð.
Lágmarks upphæð kröfu:
Skilgreinir lágmarks upphæð sem verður að vera á sölureikningi til að krafa sé búin til. Reikningur sem er með lægri upphæð er ekki hægt að búa til kröfu á.
Útprentunargjald:
Skilgreinir útprentunargjald fyrir allar pappírskröfur á viðskiptamenn sem ekki hafa sérstillingar. Þetta gjald bætist við upprunalega upphæð.
Pappírslaus gjöld:
Skilgreinir gjöld á pappírslausum viðskiptum við viðskiptamenn sem ekki hafa sérstillingar. Þetta gjald bætist við upprunalega upphæð.
Annar kostnaður:
Skilgreinir annan kostnað sem á að bætast við á greiðsluseðli.
Athugasemd á greiðsluseðli:
Ef fyrirtæki vill láta birta sérstaka athugasemd á greiðsluseðli þá er fyllt út í þennan reit.
Innheimtuaðili:
Skilgreinir bankareikning sem er sjálfgefinn innheimtuaðili, hægt er að breyta í hverjum kröfubunka fyrir sig ef kröfubunki á að vinnast á öðrum innheimtuaðila.
Gjalddagi:
Skilgreinir eftir hversu marga daga gjalddagi á kröfu er. Reiknast frá þeim degi sem krafa er búin til. Ef 0D er sett þarna inn myndast krafa á gjalddaga reiknings. Þessar stillingar gilda ef viðskiptamenn hafa ekki sérstillingar.
Lágmarks tímabil gjaldaga:
Stysta tímabil frá stofnun kröfu til gjalddaga.
Niðurfellingar dagur:
Skilgreinir eftir hve marga daga krafa er felld niður sjálfkrafa í banka ef hún hefur ekki verið greidd. Oftast er notað 36M eða 48M. Athugið að ef er skilið tómt þá verður niðurfellingardagur sama dagsetning og er á eindaga.
Birta viðvörun þegar aðgerð er valin:
Birtir viðvörun um að aðgerð hafi verið valin á kröfu?
Framkvæma aðgerð strax:
Framkvæmir aðgerðir og sendir í banka um leið og þær eru valdar á hverri kröfu fyrir sig.
Hlutagreiðsla leyfileg sjálfkrafa:
Ef hakað er í þennan reit, þá skilar það sér á öllum stofnuðum kröfum sem merkjast svo í banka þannig að hlutagreiðsla kröfu er leyfð.
Kennitölureitur viðskiptamanns:
Ef kennitölureitur á viðskiptamannaspjaldi er ekki sama og Nr. þá er hægt að skilgreina hér hvaða reitur inniheldur kennitölu.
Hámarksstærð kröfubunka:
Í hverjum kröfubunka mega ekki vera fleiri 5000 kröfur þegar þær eru sendar í bankann. Ef fleiri kröfur eru í bunkanum þarf að skipta honum upp áður en bankaaðgerðirnar eru framkvæmdar. Þessi reitur býður upp á að minnka hámarksstærð kröfubunka.
Nota sama dags bókun:
Ef hakað er í þennan reit verður krafa stofnuð um leið og sölureikningur hefur verið bókaður.
Kóti greiðslumáta:
Kóti greiðslumáta á viðskiptamannaspjaldi sem er notað af kerfinu til að stofna kröfu sjálfkrafa.
Stillingar kröfugreiðslur
Heiti bókarsniðmáts:
Skilgreinir bókarsniðmát fyrir inngreiðslubók þar sem kröfugreiðslur eru sendar til bókunar.
Heiti bókarkeyrslu:
Skilgreinir nafn á bókarkeyrslu tengdu bókarsniðmáti.
Númeraröð greiðslna:
Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir greiðslur á kröfum.
Númeraröð fjármagns:
Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir greiðslur á vöxtum sem safnast hafa á kröfur.
Fjárhagsreikningur vaxta:
Skilgreinir hvaða fjárhagsreikning vextir bókast á í inngreiðslubók.
Fjárhagsreikningur gjalda:
Skilgreinir hvaða fjárhagsreikning gjöld bókast á í inngreiðslubók.
Fjárhagsreikningur fjármagnstekjuskatts:
Skilgreinir hvaða fjárhagsreikning fjármangstekjuskattur bókast á í inngreiðslubók.
Mótreikningur gjalda:
Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikningi innheimtukostnaður bókast.
Mótreikningur vaxta:
Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikningi vextir bókast.
Forskeyti númers utanaðkomandi fylgiskjals f. vexti:
Ekki má nota sama fylgiskjalsnúmer á fleiri en eina línu. Því er þessu forskeyti bætt við vexti?
Forskeyti númers utanaðkomandi fylgiskjals f. gjöld:
Ekki má nota sama fylgiskjalsnúmer á fleiri en eina línu. Því er þessu forskeyti bætt við gjöld?
Eitt fylgiskjalsnúmer á bók:
Ef hakað er við þá verður eitt fylgiskjalsnúmer á öllum færslum í inngreiðslubókinni.
Lýsing færslu innheldur tegund greiðslu:
Ef hakað er við þá mun lýsing á kröfugreiðslu sem bókað er á viðskiptavini og fjárhag innihalda tegund greiðslu. T.d. greiðsla á kröfu mun byrja með Innb, greiðsla á vextir mun byrja með Vextir o.s.frv.
Leyfa bókun á lokaða viðskiptamenn:
Ef hakað er við þá mun kerfið leyfa bókun kröfugreiðslu inn á viðskiptamann sem hefur verið merktur lokaður.
Sjálfvirkni
Stofna kröfur sjálfkrafa:
Ef hakað er við þá mun kerfið stofna kröfur sjálfkrafa eftir að sölureikningar hafa verið bókaðar.
Kóði greiðslumáta:
Kóði greiðslumáta sem notað er til að stofna kröfur sjálfvirkt.
Kröfureikningar í bankann
Sjá nánar um virkni hér.
Senda reikninga með kröfum
Ef hakað er við þennan valmöguleika þá eru reikningar á bak við kröfur sendir til Reiknistofu Bankanna til birtingar í heimabanka viðkomandi sjálfvirkt í sömu atrennu og kröfurnar sjálfar eru stofnaðar í bankanum við framkvæmd kröfuaðgerða. Athugið að kröfureikningarnir geta einnig verið sendir í sérstöku aðgerðarkalli á kröfubunkasíðunni sem gildi þessa reits hefur ekki áhrif á. Loks er möguleiki að sleppa þessari virkni fyrir einstaka viðskiptamenn sem með því að setja reitinn "Sleppa kröfureikningum í banka" á viðskiptamannsspjaldi sem Já.
Hlaða niður sendum reikningum
Ef hakað er í þennan reit er zip skránni, sem innihélt kröfureikninga og var send í bankann, einnig hlaðið niður.
Opna logg reikninga í bankann...
Opnar síðu sem geymir tilraunir til sendinga kröfureikninga í bankann og upplýsingar um hvernig fór.
Verkraðarfærslur - Kröfugreiðslur:
Sækja, færa og/eða bóka:
Þessi reitur er notaður í verkraðarfærslu til að sækja kröfugreiðslur sjálfkrafa. Möguleikar eru: Sækja, Sækja og færa í inngreiðslubók eða Sækja, færa í inngreiðslubók og Bóka inngreiðslubókina.
Fjöldi daga aftur í tímann:
Þennan reit er hægt að nota í verkraðarfærslu til að skilgreina fjölda daga aftur í tímann sem kerfið á að sækja kröfugreiðslur sjálfkrafa. Skrifa skal fjölda daga í heiltölum og setja 'D' á eftir, eins og t.d. svona: 30D
.
Veldu bankareikninga fyrir verkraðara:
Þessi reitur opnar síðuna Veldu bankareikning fyrir Verkraðara þar sem hægt að velja þá bankareikninga sem á að sækja kröfugreiðslur sjálfkrafa fyrir. Hægt er að velja fleiri en einn Bankareikning. Ef ekkert er valið er sjálfgefinn bankareikningur (úr reitnum Innheimtuaðili) valinn.
Verkraðarfærslur - Aðgerðir krafa:
Leyfa aðgerðatillögur á lokaðar kröfur:
Ef hakað er við þá leyfir kerfið aðgerðatillögur á lokaðar kröfur.
Sækja aðgerðatillögur á kröfur fram að dagsetningu:
Ef leyft er að sækja aðgerðatillögur á lokaðar kröfur, er hægt að nota þennan reit til þess að tilgreina dagsetningu sem kerfið á að sækja aðgerðatillögur fram að. Skiljið eftir tóman reit til þess að sækja aðgerðatillögur á alla kröfuhausa.