Stillingar - Útgreiðslur
Útgreiðslur
Hlaða inn valkröfum:
Skilgreinir hvort valkröfur á greiðanda séu hlaðnar inn frá banka.
Mesti mism. við jöfn. sölur. :
Skilgreinir mesta mismun sem má vera á jöfnun á sölureikningum. T.d. ef krafa hjá banka er miklu hærri en upphæð reiknings auk mismuns þá mun krafa ekki parast við greiðslutillögu.
Mesti mism. við jöfn. innkr. :
Skilgreinir mesta mismun sem má vera á jöfnun á innkaupareikningum. T.d. ef krafa hjá banka er miklu hærri en upphæð reiknings auk mismuns þá mun krafa ekki parast við greiðslutillögu.
Sjálfg. flokkur erlendra greiðslna :
Ef framkvæmd er erlend millifærsla er hún sett sjálfkrafa í þennan flokk þangað til annað er valið.
Greiða kostnað af erlendum greiðslum:
Ef hakað er í þennan reit þá skráir kerfið að kostnaður vegna erlendrar greiðslu mun reikningsfærast á greiðanda.
Auðkenni valkrafna :
Segir til um hvaða auðkenni þýði að krafa sé valkrafa. Fyllist sjálfkrafa inn við stofnun stillingaspjalds með 880,881,882,883,884,885,886,887,888,889,890,891,892,893,894,895,896,897,898,899,981,982,983,984,985,986,987,988,989,990,991,992,993,994,995,996,997,998,999.
Textalykill valkrafna :
Segir til um hvaða textalykil þýði að krafa sé valkrafa. Fyllist sjálfkrafa inn við stofnun stillingaspjalds, MB.
Sjálfvirk uppfærsla gengis:
Ef hakað er í þennan reit mun gengi uppfærast sjálfkrafa ef útgreiðslan er skráð á annarri dagsetningu en núverandi dagsetning.
Óheftur aðgangur að gengis uppfærslum:
Ef hakað er í þennan reit verður gengi sótt með fyrsta bankanotendanum fyrir hvern banka óháð hver biður um uppfærsluna.
Eitt fylgiskjalsnúmer á bók:
Ef hakað er við þennan reit verður eitt fylgiskjalsnúmer á öllum færslum í útgreiðslubók.
Mótreikningur gjalda :
Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikning kostnaður bókast í útgreiðslubók (t.d. vanskilagjald).
Mótreikningur vaxta :
Skilgreinir á móti hvaða fjárhagsreikning vextir bókast í útgreiðslubók.
Númeraröð greiðslna :
Skilgreinir hvaða númeraröð á að nota fyrir greiðslur á kröfum.
Para greiðsluuppástungur við kröfur :
Skilgreinir hvort para eigi greiðslutillögur í útgreiðslubók við kröfur frá banka.
Sjálfgefinn bankareikningur
Hægt er að velja sjálfgefinn bankareikningur fyrir útgreiðslubók.
Erlendar greiðslur
Sjálfg. flokkur erlendra greiðslna:
Skilgreinir hvaða flokkur erlendra greiðslna er sjálfgefið í útgreiðslum.
Greiða kostnað viðtakanda:
Ef hakað er í þennan reit, mun útgreiðslan merkjast þannig í bankanum að greiðandi greiðir allan kostnaði.
Sækja kostnað erlendra greiðslna
Ef hakað er í þennan reit mun kostnaður við erlenda greiðslu vera lesinn inn í útgreiðslubók þegar erlend greiðsla er staðfest.
Reikningur kostnaðs erlendra greiðslna
Fjárhagsreikningur til að bóka kostnað erlendra greiðslna á.
Bankareikningur kostnaðs erlendra greiðslna
Sjálfgefinn bankareikningur fyrir kostnað af erlendum greiðslum. Landsbankinn: Þetta gildi er sent í bankann og notað til að bóka í útgreiðslubók. Arion: Þetta gildi er aðeins notað til að bóka í útgreiðslubók, til að stilla sérstakann kostnaðarreikning þarf að hafa samband við Arion
Senda kvittun á tölvupóstfang:
Ef hak er í þessum reit, mun útgreiðslan merkjast þannig í bankanum að bankinn mun senda tölvupóst með kvittun til viðtakanda. Netfangið þarf að vera skráð á bankareikningi lánardrottins.