Hoppa yfir í efnið

Greiðsludreifing sölupantana

Aðgerðin gerir notendum kleift að dreifa upphæð sölupöntunar í fleiri greiðslur fram í tímann.

Dæmi er dreifing sölupöntunar á 6 mismunandi gjalddaga.

Aðgerðir

1. Setja upp kóta greiðsluskilmála fyrir dreifingu:

Ef greiðsludreifingin á að vera mánaðarlega í 6 mánuði þarf að stofna kóta þar sem fjöldi gjalddaga er 6 og tímabil milli gjalddag er 1M. Þetta er gert undir Greiðsluskilmálar.

Athuga að afsláttar% á að vera 0.

alt text

2. Stofna sölupöntun:

Undir Sölupöntun er fyllt inn í alla reiti. Kóti greiðsluskilamála erfist frá viðskiptamannaspjaldi en einning hægt að breyta einstaka sölupöntunum.

alt text

3. Velja að dreifa greiðslum:

Inn á sölupöntun, er smellt á "Dreifa greiðslum pöntunar" undir Aðgerðir.

alt text

4. Bóka sölupöntun.

5. Niðurstaða í viðskiptamannafærslum:

alt text

  • Bókaður reikningur er kreditfærður að fulla á sama gjalddaga og upprunaleg sölupöntun.

  • Viðskiptamannafærslur af tegund "Reikningur eru stofnaður", eins margar og kóti greiðsluskilmála segir til um (í okkar dæmi eru 6 greiðslur með mánaðar millibili). Gjalddagi fyrstu greiðsludreifingar er sá sami og gjalddagi upprunalegrar sölupöntunar.

6. Mynda kröfur fyrir greiðsludreifingu:

Þegar er valið að mynda kröfur á þessum viðskiptavini þá myndast 6 mismunandi kröfur á viðeigandi gjaldaga.

alt text