Verkraðarfærsla til að sækja gengi sjálfvirkt
Aðgerðin til að sækja gengi gjaldmiðla frá banka sjálfvirkt getur verið sett í verkraða. Það sem skiptir mestu máli er að skrá rétt gildi í færibreytustrengnum til að sækja rétt gengi frá réttum aðila, Seðlabanki eða Banki.
Sækja gengi frá Seðlabanka Íslands
- Opna Verkraðarfærslur (finnur í leitarglugga).
- Stofna Nýtt
- Velja Codeunit í reitnumm Gerð hlutar sem á að keyra
- Í Hlutakenni keyrslu er 10041503 valið fyrir útgáfu sótta með appsource.
- Bæta við Seðlabanki;Mið í Færibreytustrengnum. Seðlabanki Íslands býður bara upp á innlestur á miðgengi.
- Velja dagana sem á að lesa inn, upphafstími, mínútufjöldi milli keyrslna og byrjunardags fyrir keyrsluna.
- Setja verkraðarfærslan á Breyta stöðu í Tilbúið.
- Gengi á svo að skila sér í reitnum Gjaldmiðlar (finnið í leitinni) reiturinn Dagsetning gengis og Gengi gefur tilkynna hvenær gengi var síðast uppfært.
Sækja sölugengi frá viðskiptabanka
- Opna Verkraðarfærslur (finnur í leitarglugga).
- Stofna Nýtt
- Velja Codeunit í reitnumm Gerð hlutar sem á að keyra
- Í Hlutakenni í keyrslu er 10041503 valið fyrir útgáfu sótta með appsource.
- Bæta við Banki;Sala;%1 í Færibreytustrengnum til að sækja sölugengi. %1 er kóti bankareiknings úr lista bankareikninga sem kerfið á að sækja gengi frá eins og á myndinni fyrir ofan. Ef %1 er skilið eftir tómt, þá sækir kerfið sölugengi frá fyrsta banka á listanum.
- Velja dagana sem á að lesa inn, upphafstími, mínútufjöldi milli keyrslna og byrjunardags fyrir keyrsluna.
- Setja verkraðarfærslan á Breyta stöðu í Tilbúið.
- Gengi á svo að skila sér í reitnum Gjaldmiðlar (finnið í leitinni), reiturinn Dagsetning gengis og Gengi gefur tilkynna hvenær gengi var síðast uppfært.
Sækja kaupgengi frá viðskiptabanka
- Opna Verkraðarfærslur (finnur í leitarglugga).
- Stofna Nýtt
- Velja Codeunit í reitnumm Gerð hlutar sem á að keyra
- Í Hlutakenni í keyrslu er 10041503 valið fyrir útgáfu sótta með appsource.
- Bæta við Banki;Kaup;%1 í Færibreytustrengnum til að sækja sölugengi. %1 er kóti bankareiknings úr lista bankareikninga sem kerfið á að sækja gengi frá eins og í myndinni fyrir ofan. Ef %1 er skilið eftir tómt, þá sækir kerfið sölugengi frá fyrsta banka á listanum.
- Velja dagana sem á að lesa inn, upphafstími, mínútufjöldi milli keyrslna og byrjunardags fyrir keyrsluna.
- Setja verkraðarfærslan á Breyta stöðu í Tilbúð.
- Gengi á svo að skila sér í reitnum Gjaldmiðlar (finnið í leitinni), reiturinn Dagsetning gengis og Gengi gefur tilkynna hvenær gengi var síðast uppfært.