Kröfubunkar
Hér opnast listi yfir kröfubunka í kerfinu.
Upplýsingar
Nr.:
Númer bunkans kemur sjálfkrafa inn út frá númeraseríu sem valin var í spjaldinu Stillingar - Kröfur.
Lýsing:
Frjáls lýsing fyrir bunka, fyllt af notanda sem stofnar bunka.
Innheimtuaðili:
Bankareikningur sem valinn var fyrir bunka. Kröfur verða stofnaðar fyrir þennan bankareikning.
Stofnað:
Dagsetning og tími sem bunki var stofnaður.
Stofnað af:
Notandakenni sem stofnaði bunka.
Upphæð:
Heildarupphæð kröfubunka.
Greidd upphæð:
Staða greiðslna í kröfubunka (heildarupphæð greidd).
Sía:
Segir til um hvernig kröfubunki var myndaður (afmarkanir sem voru notaðar).
Með því að velja "Skoða" eða "Breyta" opnast kröfubunki. Sjá nánari lýsingu hér.