Hoppa yfir í efni

Bankareikningur

alt text

Upplýsingar

Vanskilavextir:

Reiturinn segir til um hvaða vanskilavextir reiknast á kröfum. Möguleikar eru: Reikna vextir, Engir vextir, Sérstakur kóti. Passa verður að velja "Reikna vexti" frekar en tómt til þess að vanskilavextir reiknist á kröfum í banka.

Sérstakur kóti vanskilavaxta:

Ef sérstakur kóti er skilgreindur í reitnum "Vanskilavextir" þá þarf að tilgreina kóta í þessum reit. Banki gefur út kóta fyrir sérstakan útreikning á vanskilavöxtum (sem sagt ekki skv. almennri reglu frá Seðlabankanum).

Tegund vanskilagjalds:

Möguleikar eru: Ekkert vanskilagjald, Gjalddagi-gildi eru upphæðir, Gjalddagi-Gildi eru prósentur, Eindagi-gildi eru upphæðir, Eindagi-Gildi eru prósentur.

Ef á að reikna vanskilagjald þarf að velja hvort það reiknast frá gjaldaga eða eindaga og hvort gjaldið sé fast upphæð eða prósenta.

Leyfa greiðslur ekki í röð:

Ónotað.

Fyrsti afsláttur eða vanskil:

Tilgreina upphæð vanskilagjalds.

Dagar fyrir fyrstu vanskil:

Dagafjöldi eftir gjalddaga eða eindaga (fer eftir hvað var valið í "Tegund vanskilagjalds") þegar fyrsta vanskilagjald á að bætast við kröfu.

Annar afsláttur eða vanskil:

Tilgreina upphæð annars vanskilagjalds.

Dagar fyrir önnur vanskil:

Dagafjöldi eftir gjalddaga eða eindaga (fer eftir hvað var valið í "Tegund vanskilagjalds") þegar annað vanskilagjald á bætast við kröfu.

Banki færslulykla:

Þessi reitur er ekki lengur notaður.

Færsluaðgengi:

Hér er fyllt út með Codeunit ef um kreditkort er að ræða (sem sagt bankareikningur sem er kreditkort). Það er notað fyrir afstemmingu á kreditkortafærslum.

Sækja færslu codeunit:

Hér er fyllt út með númeri á Codeunit-i sem er notað til að lesa inn kreditkortafærslur í afstemmingu.

Kóti afstemmingar:

Hér er fyllt út með kóta afstemmingar ef bankareikningur á að vera með sérstakri meðhöndlun í afstemmingu.

Kreditkortategund:

Ef reikningur er kreditkort er þessi reitur notaður til að tilgreina hvort kreditkort er VISA eða Eurocard kreditkort. Ef reikningurinn er ekki kreditkort þá á reiturinn að vera tómur.

Kennitala:

Kennitala fyrirtækis vegna B2B samskipta.

Innheimtuauðkenni:

Þriggja stafa kóði sem fyrirtæki fær frá banka til að merkja kröfur sínar með.

Hægt er að halda utan um mörg innheimtuauðkenni per bankareikning. Sjá nánari lýsingu hér.

Höfuðbók:

Er oftast 66.

Uppsetning bankaþjónustu:

Tengir bankareikning með viðeigandi bankaþjónustu vegna B2B. Þannig er hægt að tengjast mismunandi bönkum úr mismunandi bankareikningum. Það þarf að fylla út í þennan reit til að geta notað B2B samskipti við banka.