Hoppa yfir í efni

Bankanotendur

alt text

Upplýsingar

Kenni Mirosoft Dynamics 365 Business Central notanda:

Hver notandi er stofnaður í "Bankanotendum". Kenni notanda er sett inn í þennan reit. Þessi reitur eru tengdur við notandauppsetningu.

Uppsetning bankaþjónustu:

Hér er valin bankaþjónusta sem notandi á að tengjast.

Notandanafn í banka:

Notandanafn sem banki hefur úthlutað viðkomandi notanda í B2B.

Lykilorð í banka:

Lykilorð fyrir viðkomandi notanda í B2B.

FTH notandamerki:

Fyllist með stjörnum þegar notandinn hefur verið skráður í B2B.

Aðgerðir

Uppsetning með hjálp:

"Uppsetning með hjálp" fer skref fyrir skref í gegnum uppsetningu á bankanotanda og skráir svo notanda á endanum í B2B samskipti. Sjá reit hér að ofan.

alt text

alt text

Skoða notandamerki:

Með því að velja þessa aðgerð er hægt að sjá notandamerki sem er annars geymd með stjörnum.

Staðfesta notandamerki:

Ef notandi hefur verið skráður en vafi liggur um hvort bankanotandi virkar er hægt að velja "Staðfesta notandamerki". Þá koma skilaboð "Notandi er með gilt merki".

Skrá/Uppfæra notanda:

Þegar kenni Dynamics 365 Business Central notanda, uppsetning bankaþjónustu, notandanafn í banka og lykilorð í banka hafa verið skráð, verður að velja "Skrá/Uppfæra notanda" til að virkja tengingu við banka. Ath. að einungis Dynamics 365 Business Central notandi sem er skráður á línu getur valið aðgerðina "Skrá/Uppfæra notanda".

Eyða merki:

Ef FTH notandamerki er gallað þá þarf að eyða merki og svo er hægt að velja "Skrá/Uppfæra" til að stofna nýtt FTH notandamerki.