Hoppa yfir í efni

Vinnuskjal krafna:

alt text

Afmarkanir undir flipa Almennt

Notandi getur blandað öllum afmörkunum til að þrengja niðurstöður.

Nr. kúnna:

Hægt að afmarka á númer viðskiptamanns sem fær kröfu.

Dagsetningarafmörkun:

Hægt að afmarka á dagsetningu krafna.

Komið fram yfir gjalddaga:

Hægt að afmarka á kröfur sem eru komnar fram yfir gjalddaga.

Komið fram yfir eindaga:

Hægt að afmarka á kröfur sem eru komnar fram yfir eindaga.

Opin

Hægt að afmarka á kröfunum sem eru opin.

Hægt að afmarka á kröfur sem eru opnar.

Greitt:

Hægt að afmarka á kröfur sem eru greiddar.

Hlutagreitt:

Hægt að afmarka á kröfur sem eru hlutagreiddar.

Niðurfelld:

Hægt að afmarka á kröfur sem eru felldar niður.

Listi

Nr.:

Númer kröfu.

Gjalddagi:

Gjalddagi kröfu.

Lýsing:

Lýsing kröfu, oftast viðskiptamannanafnið.

Bunka nr.:

Númer bunka sem krafa tilheyrir.

Reikn. færist á viðskm.:

Nr. viðskiptamanns sem var í reitnum "Reikn.færist á viðskm." á sölureikningi.

Tilvísun yðar:

Inniheldur númer kröfu.

Samskiptastaða:

Segir til um hvort krafan hefur verið sent í banka eða ekki.

Staða kröfu:

Segir til um stöðu kröfu í banka.

Eindagi:

Eindagi kröfu.

Niðurfellingardagur:

Sá dagur sem krafa verður felld niður sjálfkrafa í banka ef hún er ennþá ógreidd.

Kenni viðskiptamanns:

Númer viðskiptamanns sem fær kröfu.

Selt-til viðskm. nr.:

Nr. viðskiptamanns sem var í reitnum "Selt-til viðskiptam." á sölureikningi.

Auðkenni:

Innheimtuauðkenni sem krafa var stofnuð á í banka.

Upphafleg upphæð:

Upphafleg upphæð kröfu (upphæð kröfu við stofnun).

Upphæð:

Núverandi upphæð kröfu (getur hafa verið hlutagreidd eða eftirstöðvar reiknings hafa breyst síðan).

Greidd upphæð:

Upphæð sem hefur verið greidd af kröfu.

Eftirstöðvar:

Eftirstöðvar kröfu ef upphæð er ekki sama og upprunaleg upphæð.

Hlutagreiðsla leyfileg:

Ef á að leyfa hlutagreiðslu á kröfu er hakað í þennan reit.

Samskiptavilla:

Ef krafa hefur lent á villu í bankasamskiptum er hakað í þennan reit.

Samskipta villa nr.:

Ef krafa hefur lent á villu í bankasamskiptum er fyllt í reitinn með villunúmeri.

Samskipta villa lýsing:

Ef krafa hefur lent á villu í bankasamskiptum er fyllt í reitinn með villulýsingu.

Niðurfelling sent þann:

Dagsetning sem notandi sendi niðurfellingarbeiðni til banka.

Samskipta færslur tegund:

Ef krafa hefur lent á villu í bankasamskiptum er fyllt í reitinn með tegund.

Bankareikningur:

Bankareikningur sem krafa var stofnuð í.

Banki nr.:

Númer banka fyrir bankareikning.

Höfuðbók:

Höfuðbók bankareiknings.

Stofntími:

Dagsetning og tími sem krafa var stofnuð.

Dagsetning framkvæmdar greiðslu:

Dagsetning sem krafa var greidd.

Aðgerð:

Ef aðgerð er valin sem hefur ekki verið framkvæmd þá er fyllt út í þennan reit.

Staða:

Samskiptastaða.

Milliinnheimta aðgerð:

Tengist Mótus kerfinu.