Hoppa yfir í efni

Listi kröfulína

alt text

Upplýsingar

Kröfunúmer:

Númer kröfu skv. númeraröð sem tilgreind er í Stillingar - Kröfur.

Kröfulínu nr.:

Ef krafa er byggð á fleiri en einum reikning þá stofnast kröfulínu nr. per reikning. Fyrsti reikningur fær nr. 1.

Bókunardagsetning:

Bókunardagsetning fylgiskjals sem krafa byggist á.

Tegund fylgiskjals:

Tegund fylgiskjals sem krafa byggist á (oftast Reikningur).

Númer fylgiskjals:

Númer fylgiskjals sem krafa byggist á (sölureikningsnúmer).

Gjalddagi:

Gjalddagi fylgiskjals sem krafa byggist á.

Upphæð:

Upphæð fylgiskjals sem krafa byggist á.

Eftirstöðvar:

Eftirstöðvar fylgiskjals sem krafa byggist á (ef upprunalegri upphæð hefur verið breytt með kreditreikningi eða hlutagreiðslu). Ef krafa er greidd og kröfugreiðsla bókuð í fjárhag, þá eru eftirstöðvar 0.

Upphafleg upphæð:

Upphafleg upphæð fylgiskjals sem krafa byggist á (ef fylgiskjal hefur ekkert breyst eru upphæð og upprunaleg upphæð eins svo sem eftirstöðvar).

Samskiptastaða:

Á að vera sama og í kröfuhaus.

Staða kröfu:

Staða kröfu í banka (möguleikar eru Opin, Greidd, Niðurfelld, Hlutagreidd).

Nr. viðskm. færslu:

Númer færslu fyrir fylgiskjal.

Bunka nr.:

Númer kröfubunka sem krafa var stofnuð í.