Hoppa yfir í efni

Greiðslutillögur til lánardrottna

Aðgerðin leggur til greiðslu til lánardrottna út frá forsendum sem notandi velur.

alt text

Upplýsingar

Síðasti greiðsludagur:

Hér skal tilgreina síðasta greiðsludag fyrir tillögur. Kerfið mun ekki leggja til að greiða innkaupareikninga sem eru á gjalddaga eftir síðasta greiðsludag.

Athuga aðra greiðslubunka:

Ef hakað er í þennan reit mun kerfið athuga hvort greiðslan er þegar til í aðra greiðslubunka.

Leggja saman fyrir hvern lánardrottinn:

Ef hakað er í þennan reit mun kerfið leggja saman allar greiðslutillögur fyrir hvern lánardrottinn og stofna bara eina línu í útgreiðslubók.

Bókunardagsetning:

Bókunardagsetning fyrir útgreiðslubók.

Upphafsnúmer skjals:

Ef númeraröð hefur verið úthlutað á útgreiðslubók þá fyllist þessi reitur sjálfkrafa með næsta lausa númeri. Annars verður notandi að handfæra inn upphafsnúmer fylgiskjals.

Hægt er svo að afmarka sérstaklega á lánardrottinn eða upplýsingar á lánardrottnaspjaldi, eins og t.d. kóti greiðslumáta.