Hoppa yfir í efni

Stillingar - Afstemming

alt text

Upplýsingar

Kóti:

Er notað eingöngu ef margar uppsetningar á afstemmingu eru stofnaðar. Þá er hægt að úthluta kóta afstemmingar per bankareikning.

Sjálfgefinn bankareikningur:

Hér er færður inn sjálfgefinn bankareikningur fyrir afstemmingu.

Númeraröð afstemmingar:

Hér er númeraröð afstemmingar valin. Færslur sem eru jafnaðar eru fylltar út með þetta númer í reitnum "Afstemming ID".

Eitt jöfnunarnúmer á keyrslu:

Ef hakað er í þennan reit verður eitt jöfnunarnúmer á öllum færslum þegar keyrsla er gerð.

Mesti leyfilegi dagsetningamunur:

Þessi reitur er notaður í sjálfvirka jöfnun. Skilgreinir hver er mesti dagsetningarmunur á jöfnuðum færslum t.d. 1D fyrir 1 dagur.

Leyfa óöruggar uppástungur:

Þessi reitur er notaður í sjálfvirka jöfnun. Skilgreinir hvort á að jafna færslur sem teljast óöruggar t.d. ef mesti leyfilegi dagsetningarmunur er 3 dagar þá telst það sem óörugg uppástunga.

Eitt fylgiskjalsnúmer á bók:

Ef hakað er í þennan reit verður sama fylgiskjalsnúmer á öllum færslum sem færðar eru úr afstemmingu í greiðslubók.