Hoppa yfir í efni

Mynda kröfur

Aðgerðin býr til kröfu fyrir allar opnaðar viðskiptamannafærslur skv. afmörkun sem notandi velur. Sjá mynd að neðan.

alt text

Valmöguleikar

Gjalddagi:

Ef ekkert er valið í þessum reit verður gjalddagi fylltur út með dagsetningu þegar notandi myndar kröfu. Nema það sé sérstök stilling á viðskiptamannaspjaldinu í reitnum "Kóti bankakerfisgrunns". Ef notandi vill ákveða gjalddaga krafna þá tilgreinir hann dagsetningu hér.

Eindagi:

Ef ekkert er valið í þessum reit verður eindagi fylltur út með dagsetningu þegar notandi myndar kröfu. Nema það sé sérstök stilling á viðskiptamannaspjaldinu í reitnum "Kóti bankakerfisgrunns". Ef notandi vill ákveða eindaga krafna þá tilgreinir hann dagsetningu hér.

Afmarkanir á viðskiptamanni:

T.d. afmarka á nr. eða greiðslumáta til að stofna kröfur eingöngu á afmarkaða viðskiptavini.

Afmarkanir á viðskm. færslu:

T.d. afmarka á bókunardagsetningu til að stofna kröfur eingöngu á valdar færslur.