Hoppa yfir í efni

Kröfugreiðslur

Hér opnast listi yfir kröfugreiðslur í kerfinu:

alt text

Upplýsingar

Ekki hreyfa færslu:

Þessi reitur er notaður fyrir kröfugreiðslur sem hafa verið færðar í inngreiðslubók og bókaðar í fjárhag. Hakað er sjálkrafa í þennan reit þegar kröfugreiðsla hefur verið bókuð þannig að kerfið bóki ekki tvisvar sömu kröfugreiðslu.

Línurnr.:

Línunúmer kröfugreiðslu í töflu.

Kröfunúmer:

Kröfunúmer sem var greitt fyrir.

Eindagi:

Eindagi krafna sem var greitt fyrir.

Reikn. færist á viðskm.:

Kennitala viðskiptamanns sem fékk kröfu.

Upphæð:

Upphæð krafna sem var greitt fyrir.

Áminningargjald:

Upphæð áminningargjalds.

Vanskilagjald:

Upphæð vanskilagjalds sem lagðist á kröfu.

Dráttarvextir:

Upphæð dráttarvaxta sem lögðust á kröfu.

Upphæð lögð inn:

Heildarupphæð greidd á kröfu (getur verið upphæð reiknings auk ýmissa gjalda og dráttarvaxta).

Fjármagnstekjuskattur:

Upphæð fjármagnstekjuskatts sem var greiddur af dráttarvöxtum sem lögðust á kröfu.

Greiðslur:

Upphæð greiðslu á kröfu fyrir utan gjöld.

Annar kostnaður:

Upphæð annars kostnaðar sem var greiddur með kröfu svo sem seðilgjald.

Annar grunnkostnaður:

Upphæð annars vanskilakostnaðar sem var greiddur með kröfu.

Upph. upphaflegrar kröfu:

Upphæð kröfu þegar hún var stofnuð (getur haft breyst ef upphæð kröfu hefur breyst og krafa uppfærð í banka).

Upphæð gegn kröfu:

Greidd upphæð mínus öll aukagjöldin og kostnaður.

Gjalddagi:

Gjalddagi krafna.

Dagsetning færslu:

Dagsetning kröfugreiðslu.

Bókunardagsetning:

Bókunardagsetning fylgiskjals sem krafa byggist á.

Tilvísun yðar:

Kennitala viðskiptamanns er sett inn sem tilvísun.

Kröfuhafi:

Kennitala kröfuhafa (úr stofngögnum fyrirtækis).

Nr. kúnna:

Kennitala viðskiptamanns sem greiðir kröfu.

Auðkenni:

Innheimtuauðkenni fyrir kröfu.

Banki nr.:

Númer útibús bankareiknings þar sem krafa var stofnuð.

Höfuðbók:

Höfuðbók sem var notuð til að stofna kröfu. Kemur úr reitnum Höfuðbók í Stillingar - Kröfur.

Innheimtuaðili:

Bankareikningur sem krafa var stofnuð í.

Flokkunarkóti:

Flokkunarkóti frá bankanum.

Innlausnarbanki:

Banki greiðanda.

Bunka nr.:

Bunka númer frá bankanum.

Reikningur:

Reikningur á greiðsluseðli. Er samansett af bankanúmeri, höfuðbók og kröfunúmeri.

Lesið inn:

Dagsetning sem kröfugreiðsla var lesin inn í kerfið (úr banka).

Kröfubunkanúmer:

Númer kröfubunka sem krafa var stofnuð í.

Upplýsingakassi - Staða

Bókað:

Stendur "Já" ef kröfugreiðslur hafa verið bókaðar í inngreiðslubók. Ef smellt er á "Já" opnast bankareikningsfærslur sem tilheyra kröfugreiðslu sem notandi er staddur í.

Lesið yfir í inngreiðslubók:

Stendur "Já" ef kröfugreiðslur hafa verið færðar yfir í inngreiðslubók.

Aðgerðir á kröfugreiðslum

Sækja kröfugreiðslur úr banka:

Þessi aðgerð sækir nýjar kröfugreiðslur úr banka. Sjá nánari lýsingu hér.

Færa kröfugreiðslur í inngreiðslubók:

Þessi aðgerð færir kröfugreiðslur í inngreiðslubók til bókunar í fjárhag. Sjá nánari lýsingu hér.

Færa greiðslur í greiðslusafn:

Þessi aðgerð setur eldri kröfugreiðslur í geymslu. Sjá nánari lýsingu hér.

Opna greiðslusafn:

Þessi aðgerð opnar kröfugreiðslur sem hafa verið settar í geymslu. Sjá nánari lýsingu hér.