Hoppa yfir í efni

Sækja kröfugreiðslur frá banka

Aðgerðin sækir alla ósóttar kröfugreiðslur frá banka. Ath. að kröfugreiðslur þurfa að fara gegnum Reiknistofu bankanna á miðnætti dagsins sem þær berast til þess að geta verið staðfestar og sóttar af kröfuaðila. T.d. ef krafa er greidd 18.12.19 þá er bara hægt að sækja kröfugreiðsluna 19.12.19 frá kl. 1.

Þegar aðgerðin hefur verið keyrð merkjast kröfugreiðslur í banka sem sóttar og verður ekki hægt að sækja þær aftur.

Hægt er að setja þessa aðgerð í verkraðara svo kröfugreiðslur lesist inn sjálfkrafa frá banka einu sinni á dag. alt text

Bankareikningur:

Hér skal tilgreina bankareikningsnúmer sem fékk kröfugreiðslu.

Frá dags:

Hér skal tilgreina byrjun tímabils sem kröfugreiðslur ná til.

Til dags:

Hér skal tilgreina enda tímabils sem kröfugreiðslur ná til.