Erlendar greiðslur
Farið verður yfir hvernig er hægt að framkvæma erlendar greiðslur í banka úr Bankakerfinu
Aðgerðir
1. Stillingar á lánardrottnum:
Áður en erlend greiðsla er framkvæmd er mikilvægt að allar stillingar á lánardrottnum séu réttar. Það þarf að passa að eftirfarandi reitir á lánardrottnaspjaldinu séu fylltir út með réttum gildum: nafni, heimilisfangi, borg, landi, gjaldmiðilskóta.
Einnig þarf að passa að upplýsingar um bankareikning lánardrottins séu réttar. Hér þarf að fylla út í eftirfarandi reiti: nafn, borg, land, SWIFT og IBAN. Ef þessar upplýsingar eru ekki til staðar mun notandi fá upp villu þegar reynt er að framkvæma erlenda greiðslu.
Ef tölvupóstur er fylltur út og hak er sett í stillingum-útgreiðslu um að senda tölvupóst, þá mun banki senda greiðslukvittun til lánardrottins.
2. Framkvæma erlenda greiðslu:
Hafa þarf í huga að aðeins er hægt að senda erlendar greiðslur til banka á ákveðnum tíma sólarhringsins. T.d ef greitt er af ISK reikning þá er bara hægt að greiða milli 9:15-16:00 hjá flestum bönkum.
2.1. Greiðslutillögur til lánardrottna:
Erlendar greiðslur í Dynamics 365 Business Central fara fram á sama máta og aðrar greiðslur. Fyrst er byrjað á því að framkvæma greiðslutillögur til lánardrottna í útgreiðslubókinni. Hér viljum við afmarka okkur á ákveðin/ákveðna lánardrottna sem á að framkvæma erlenda greiðslu fyrir eða á gjaldmiðilskóta greiðslunar. Athugið að ekki má blanda saman erlendum og íslenskum greiðslum.
2.2. Senda bunka í banka:
Þegar búið er að framkvæma greiðslutillögur og búið er að yfirfara að allar upplýsingar séu réttar þá eru greiðslur sendar í banka. Þegar greiðslur eru sendar til banka þá fá þær stöðuna "Send í banka".
2.3. Athuga stöðu bunka:
Aðgerðin "Athuga stöðu bunka" sér um að athuga hvort greiðslur hafi verið staðfestar af banka. Ef mikið álag er á kerfinu þá getur tekið smá stund fyrir greiðslur að verða staðfestar.
Þegar búið er að staðfesta að greiðslur séu villulausar og hafi skilað sér til banka, breytist staðan á greiðslum í "Staðfest frá banka".
3. Bóka útgreiðslubók:
Þegar allar greiðslur hafa verið staðfestar frá banka er hægt að bóka útgreiðslubók. Athugið að það bætist oft gjald við erlenda greiðslu sem þarf þá að færa inn handvirkt í útgreiðslubók fyrir bókun.