Hoppa yfir í efni

Sækja gengi

Aðgerðin sækir gengi gjaldmiðla frá banka og skráir það í Gengi gjaldmiðla.

Hægt er að setja þessa aðgerð í verkraða svo gengi gjaldmiðla lesist sjálfkrafa inn frá banka einu sinni á dag. Sjá nánari lýsingu hér.

alt text

Upplýsingar

Sækja dagsetning:

Dagsetning gengis sem á að sækja.

Gengisheiti:

Hægt er að velja á milli sölugengis og kaupgengis.

Bankareikningur nr.:

Hægt er að setja inn afmörkun um hvaða bankareikning á að sækja gengi fyrir og þannig stýra frá hvaða banka gengi er sótt.