Hoppa yfir í efni

Keyra sjálfvirka jöfnun fyrir ákveðið tímabil

Aðgerðin jafnar sjálfkrafa bankahreyfingsfærslur úr banka með bankafærslum í Microsoft Dynamics 365 Business Central skv. reglu sem sett er upp í Stillingar - Afstemming á ákveðnu tímabili sem notandinn velur.

Almenn regla er að færslur eru jafnaðar sjálfkrafa ef þær eru af sömu upphæð og á sömu bókunardagsetningu. Ef mesti leyfilegi dagsetningarmunur í Stillingum - Afstemming er t.d. 3D þá getur kerfið jafnað sjálfvirkt færslur sem eru af sömu upphæð á bókunardagsetning innan við 3 daga.

Kerfið sýnir svo skilaboð um hve margar færslur voru jafnaðar sjálfvirkt.

alt text

Upplýsingar

Bankareikningur:

Hér er hægt að velja bankareikning sem á að keyra sjálfvirka jöfnun á.

Dagsetning frá:

Hér er valið frá hvaða dagsetningu á að keyra sjálfvirka jöfnun.

Dagsetning til:

Hér er valið til hvaða dagsetningar á að keyra sjálfvirka jöfnun.