Hoppa yfir í efni

Innkaupareikningur

Innkaupareikningur er skráður skv. skannaðri mynd og er það standard Microsoft Dynamics 365 Business Central spjald þar sem reitir fyrir Samþykktakerfi hafa bæst við. Í framhaldi er hægt að velja samþykkjandahóp og senda til samþykktar.

alt text

Upplýsingar

Staða:

Staða reiknings er "Opin" þangað til hann er sendur til samþykktar. Þá verður staðan "Bíður samþykkis". Þegar reikningur hefur verið samþykktur breytist staðan í "Útgefin".

Sendar samþykktir:

Kerfið fyllir sjálfkrafa út notandakenni þess sem sendir reikning til samþykktar um leið og aðgerðin "Senda samþykktabeiðni" hefur verið valin.

Samþykkjandahópur:

Hér skal velja samþykkjandahóp sem reikningur á að fara á.

Samþykkt hafnað:

Kerfið fyllir sjálfkrafa út "Já" í þennan reit ef samþykkjandi hafnar samþykktabeiðni.

Hafnandi samþykktar:

Kerfið fyllir sjálfkrafa með notandanafni þess sem hefur hafnað samþykktabeiðni.

Athugasemd samþykktar:

Kerfið birtir hér athugasemd sem samþykkjandi hefur skilið eftir þegar hann hafnaði samþykktabeiðni.

Skjalaskrár á innleið:

Í þessum glugga sést mynd í viðhengi sem var notuð til að stofna innkaupareikning.

Aðgerðir

Myndir:

Hægt er að opna mynd sem er tengd við innkaupareikning.

Senda samþykktabeiðni:

Með því að velja þessa aðgerð sendist samþykktabeiðni til samþykkjanda. Sjá nánari lýsingu hér.

Hætta við samþykktabeiðni:

Með því að velja þessa aðgerð er hætt við samþykktabeiðni til samþykkjanda. Sjá nánari lýsingu hér.

Samþykktir:

Samþykktir sýna hverjir hafa fengið reikning til samþykktar og hver staða á reikningi er í Samþyktkakerfinu. Sjá nánari lýsingu hér.

Síðustu samþykktir:

Síðustu samþykktir sýna allt samþykktaferli reiknings, hvernig reikningur færist til samþykktar milli aðila og hver á eftir að samþykkja. Sjá nánari lýsingu hér.