Hoppa yfir í efni

Innkaupareikningslisti

Á innkaupareikningslista er hægt að hafa yfirsýn yfir stöðu reikninga og samþykktir þeirra. Reitirnir fyrir Samþykktakerfi hafa verið bættir við standard Microsoft Dynamics 365 Business Central innkaupareikningslista.

alt text

Staða

Staða:

Staða reiknings er opin þangað til hann er sendur til samþykktar. Þá verður staðan "Bíður samþykkis". Þegar reikningur hefur verið samþykktur breytist staðan í "Útgefin".

Samþykkjandahópur:

Hér skal velja samþykkjandahóp sem reikningur á að fara á.

Samþykkt hafnað:

Kerfið fyllir sjálfkrafa með "Já" í þennan reit ef samþykkjandi hafnar samþykktabeiðni.

Hafnandi samþykktar:

Kerfið fyllir sjálfkrafa með notandanafni þess sem hefur hafnað samþykktabeiðni.

Athugasemd samþykktar:

Kerfið birtir hér athugasemd sem samþykkjandi hefur skilið eftir þegar hann hafnaði samþykktabeiðni.

Skjalaskrár á innleið:

Í þessum glugga sést mynd í viðhengi sem var notuð til að stofna innkaupareikning út frá listanum.

Aðgerðir

Senda samþykktabeiðnir fyrir valda reikninga:

Með því að velja þessa aðgerð sendist samþykktabeiðni til samþykkjanda fyrir alla valda reikninga. Sjá nánari lýsingu hér.

Hætta við samþykktabeiðnir fyrir valda reikninga:

Með því að velja þessa aðgerð er hætt við samþykktabeiðni til samþykkjanda fyrir alla valda reikninga. Sjá nánari lýsingu hér.

Samþykktir:

Samþykktir sýna hverjir hafa fengið reikning til samþykktar og hver staða reiknings er í Samþykktakerfinu. Sjá nánari lýsingu hér.

Myndir:

Hægt er að opna mynd sem er tengd við innkaupareikning út frá lista.